Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 59

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.11.1918, Side 59
197 réttlátum grundvelli, þannig að stórþjóðirnar og sigurvegararnir noti ekki í eigingjörnu skyni valda- yfirburði sína. Frákkland. Samvinnublað Sviaslendinga »Genossen- schaftliches Volks Blattc segir: »Hér í landi eru allir stjórnmálaflokkar fjandsam- legir samvinnustefnunni nema vinstrimenn og jafnaðar- menn. En í Frakklandi kveður við í öðrum tón. J. Godart aðstoðarráðherra hefir fengið framkvæmdar- nefnd tveggja stærstu flokkanna til að ákveða, að ríkið skuli framvegis styðja af alefli að því, að magna og efla kaupfélagsskapinn í landinu. Og ástæðan er sú, að í hörmungum undanfarinna ára hefir starfsemi sam- vinnufélaganna haft ómetanlega þýðingu við vöruað- drætti og þó einkum réttmæta skiftingu þeirra. Jafn- vel hið harðsnúna íhaldsblað »La libre Parolec lofar kaupfélögin með sterkum orðum fyrir að hafa haldið í skefjum svívirðilegri kúgunartilhneigingu kaupmanna-- verzlana«. Ungverjaland. í sama blaði er þess getið, að kaup- félög Ungverja séu í mikilli framför. Astæðan sama og í Frakklaudi. Um áramótin 1917—18 voru þar í landi 1707 kaupfélög. Félagsmenn 2*/a miljón. Árs- velta 155 miljónir kr. En á 9 fyrstu mánuðum ársins 1918 voru stofnuð 369 kaupfélög. Félagsmenn V2 miljón. í lok september var ársvelta allra félaganna orðin 2401 miljónir. Miðstöð ungverskra kaupfélaga heitir »HaDgya« í Budapest. Eússland. Nafnkendur rússneskur samvinnumaður Alexander Asandrejev hefir látið samvinnublaði Norð- manna í té stutt yfirlit um hag rússnesku samvinnu- stefnunnar, siðan Bolschevikar tóku við stjórn. Eftir hans sögusögn hafa samvinnufélögin fengið'

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.