Andvari - 01.04.1962, Page 56
54
•ÁSGEIU ÞORSTEINSSON
ANDVARI
getur ekki verið ágreiningur; því þótt deila
yrði um atriði eins og „land“ eða „ríki“,
var það eins og deilan um keisarans
skegg.
„Land“ og „ríki“ var notað jöfnum
höndum um sama hugtakið, t. d. af Jóni
Sigurðssyni (Ríkisréttindi Islands, bls.
IV). Friðrik 8. talaði á Kolviðarhóli 1907
um „bæði ríkin“.
Titill konungs átti að vera „Konungur
Danmerkur og Islands" og er því þar um
tvö konungsríki að ræða.
Millilanda- eða ríkjasambandið, sem
löndin tvö bundust, fékk heitið „veldi
Danakonungs" á íslenzku, en „det sam-
lede danske Rige“ á dönsku.
Það var viðurkennt í millilandanefnd-
inni 1908, að íslenzka orðalagið væri rétt
þýðing.
ísland varð með Llppkastinu sjálfstætt
ríki, og í þessu tilviki konungsríki. Kon-
ungurinn varð þjóðhöfðingi tveggja
ríkja samkvæmt titlinum, í stað eins áður.
'Nú er „ríki" sama og „vald“. Gagnvart
konunginum urðu því ríkin tekin saman
(samlet) „veldi“ hans, veldi Friðriks 8.
Til frambúðar varð „veldið" að tengj-
ast almennu heiti og „Danakonungur"
varð fyrir valinu með samþykki Islands,
án þess að Danmörk fengi við það nokkur
hlunnindi gagnvart Islandi, því um þeirra
samskipti gilti samningur. „Veldi Dana-
konungs" var því ekki nema heiti, sem
sést bezt á því, að Dönum var alls ósárt
um, þó að það félli úr Uppkastinu, þótt
þeir tækju þvert fyrir efnisbreytingar við
alþingisforsetana eftir stjórnarskiptin
1909.
Einar Arnórsson skrifaði um Upp-
kastið í „Reykjavík" 16. júní 1908, m. a.
á þessa leið:
„Ut á við er „veldi Danakonungs" ein
heild, meðan sömu stjórnarvöld fara með
utanríkismálin fyrir bæði löndin. Þetta
er þjóðréttarhliðin á sambandinu. „Det
samlede danske Rige“ og „Veldi Dana-
konungs" er því rétt heiti og þarf engan
að hneyksla".
Andstæðingar Uppkastsins vildu gera
lítið úr gagnsemi hinnar viðurkenndu
þýðingar, „veldi Danakonungs", þar sem
réttari þýðing væri „danska alríkið" eða
„danska ríkisheildin". Þessi þýðing sam-
rýmist ekki hagsmunum íslands og má af
því sjá, hvert snjallræði það var að öðlast
hina viðurkenndu þýðingu, sem hafði það
í för með sér, að merking orðsins „Rige“
sem „Kongedömme" varð ótvíræð. Hinar
þýðingarnar gátu hins vegar átt við „Rige“
í merkingunni „Stat“. Nú var það úti-
lokað.
Yfirlýsingin í Uppkastinu hljóðaði
endanlega á þessa leið, eins og fyrr segir:
„ísland er frjálst og sjálfstætt ríki.“
Ef látið er liggja á milli hluta, hvers
konar ríki ísland var, er samt engum blöð-
um um það að fletta, að þessi yfirlýsing
af hálfu Danmerkur og Danakonungs var
gerbreyting á Stöðulögunum, og ísland
ekki lengur í tölu hjálendna Danmerkur
eða landshluta hennar.
Samtengt konungssamband við utan-
ríkismál og hermál var ófrávíkjanlegt skil-
yrði af Dana hálfu, sem fallizt var á
vegna fullyrðingar dönsku nefndarinnar,
„að konungssamband milli landanna væri
með öllu óaðgengilegt, nema og væri
samband um utanríkismál og hervörn",
eins og segir í nefndarálitinu.
Þetta var alvarlegasta krafa Dana í
sambandsmálinu, og sú, sem mestum hita
olli á alþingi 1909. Flún verður skýrð
síðar.
Um varanleika þessara tengsla við kon-
ungssambandið hlaut því að fara eftir
því, hvort ísland gæti beitt náttúruleg-
um rökum við konung vegna breyttra
atvika eða kringumstæðna, fjárhagslegra