Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 14

Andvari - 01.06.1964, Page 14
12 SVEND KBAGH-JACOBSEN ANDVARI að nefna sjóðinn, sem kenndur er við Kirstein Rothe, þar sem segir við úthlutun verðlaunanna, eftir tíu ára óslitin störf í þágu listarinnar á leiksviði Konung- lega leikhússins, — „verður einkanlega lögð áherzla á eftirbreytnisverða með- ferð danskrar tungu". Meiri heiður getur danska þjóðleikhúsið ekki sýnt leik- konu, sem fædd er erlendis. Hún lék Valborgu i „Axel og Valborgu“, og fyrir oss, sem þá vorum ungir stúdentar, varð hún blátt áfram ímynd rómantískrar fegurðar, hreinleika og titrandi ástar. 1 höndum Egils Rostrup varð sviðsetningin virðuleg, en mjög raunsæ, sviðið einfalt, en ákaflega hrífandi, með stórum súlum Þrándheims- dómkirkju og dirnrnt umhverfis þær. Fram úr myrkrinu gekk hér hin bjarta — næstum geislandi bjarta — Valborg, svo hlý og ung og engri annarri lík í þrá sinni, svo hrein og sterk í kærleika sínum, að þau leiftur af íslenzkum málblæ, sem enn urðu greind í framsögn hennar, urðu aðeins til að auka á ljómann yfir gullaldarmálinu, sem annars er ekki hin sterka hlið hjá dönsku æskufólki á leik- sviðinu, jafnvel ekki hinu konunglega leiksviði. Þó hafði hún til allrar ham- ingju við hlið sér annan ungan leikara, sem tileinkaði sér „gullaldarframsögn“. Martin Hansen kom fram í fyrsta sinn í hlutverki Axels, og með önnur hlut- verk fóru Eyvind Johan-Svendsen sem Vilhelm, Poul Reumert sem Erlendur biskup og Thorkild Roose sem Knútur svartmunkur. En það er Anna Borg, sem lifir í endurminningunni um sýninguna í þessu ungfrúargervi Oehlen- schlágers, hin skáldlegasta, göfgasta og um leið hlýjasta og yndislegasta Valborg, sem Konunglega leikhúsið hefur sýnt oss á þessari öld. Leiksigurinn festi hana í sessi, en vorið varð róstusamt við Kóngsins Nýjatorg. Það var í þann tíð, er kennslumálaráðherrann, Frederik Borgbjærg, leitaðist við að gerbreyta þjóð- leikhúsinu með lögunum um tvö leiksvið og valdi Adam Poulsen fyrir leik- hússtjóra, sem hafði örlagaríkar afleiðingar. Það fékk eftirköst fyrir starfsfólk, viðfangsefni og alla stofnunina, sem hrjáðu Konunglega leikhúsið síðan um mörg ár. I fararbroddi fyrir forystuliði leikaranna sagði Poul Reumert upp stöðu sinni í mótmælaskyni við brigðmælgi ráðherrans og ögrandi framkomu nýja leikhússtjórans. Þegar leikárinu lauk, fór Anna Borg til íslands á alþingishátíð- ina og lék EIöllu í „Fjalla-Eyvindi“ í Reykjavík og var heiðruð með sérstakri kveðjusýningu, áður en hún sneri aftur til Kaupmannahafnar. Adarn Poulsen náði ekki að stjórna til loka fyrsta leikárs síns, veikindi hömluðu og neyddu hann til að hverfa frá leikhúsinu. Þetta leikár byrjaði hjá Önnu Borg með amerískum alþýðugamanleik, „Götunni" eftir Elmer Rice, þar sem hún skildi ekki eftir nein varanleg spor í hlutverki stúlkunnar Rose Maurrant. Aftur á móti var hún sú eina, sem bragur var að í Oehlenschláger-sýn- ingunni, er afmæli skáldsins var hátíðlegt haldið 14. nóvember 1930. Til sýn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.