Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 16

Andvari - 01.06.1964, Side 16
14 SVEND KRAGH-JACOBSEN ANDVARI ingar hafði verið valinn einn af síðari harmleikjunum, „Væringjarnir í Mikla- garði“, sem þá hafði legið í salti í mannsaldur. Adam Poulsen hafði sjálfur sett leikinn á svið eftir gamalli siðvenju, og Harald Slott Möller hafði gert stórfeng- legar og margbrotnar skreytingar. í sýningunni var hvergi reynt að gera hana einfaldari — að láta orðin bera sýninguna uppi, eins og dr. Rostrup hafði leitazt við í uppfærslu sinni á Oehlenschlager árið áður, sem var langtum skýrari og meira hrífandi, þar sem Anna Borg hafði sýnt svo framúrskarandi áhrifavald. Hlutverkaskipunin virtist á yfirborðinu sterk í „Væringjunum í Miklagarði“, en var í rauninni sérlega ójöl'n, svo að tómahljóð varð í allri við- höfninni með köflum. Gagmýnandi einn skrifar svo í leikdómi sínum, að Önnu Borg hafi hér einni tekizt í gervi grísku stúlkunnar Maríu ,,að gæða hið tærða hlutverk hennar fyllingu og yl af furðulegri auðlegð anda síns.“ Já, þar gerðist það, að hún var sú eina, senr kom fram í anda Oehlenschlágers, enda þótt miklir listamenn eins og Johannes Poulsen og Else Skouboe léku þar einnig. Með sjálfri sér vissi Anna Borg, hvernig leika verður leikrit Oehlenschlágers án þess að ganga langt í að gera þau nýtízkuleg, en líka án þess að halda við innantómar venjur. Ennþá einu sinni voru það tilfinningarnar frá hinurn djúpu innri lindum, sem spruttu frarn og gerðu henni mögulegt að standast þessa óheppilegu uppfærslu. 1 hléinu fyrir næsta stóra viðfangsefnið var henni trúað fyrir hlutverki ungfrú Henberg nokkurrar í ómerkilegum tízkuleik eftir Jens Locher, „Um alla jörð“, en í næstsíðasta mánuði leikársins kom þrekraunin mikla. Eins og Anna Borg hafði sýnt skáldlegan sætleika og ungt sakleysi sitt í hlutverki Valborgar, fékk hún nú tækifæri að sýna í leik sínurn örvilnun og fylla persónu mikilli og taumlausri ástríðu. Það átti að sýna ,,Faust“ eftir Goethe. Anna Borg fékk hlutverk Margrétar. Með leik sínum í þessu hlutverki sannaði hún svo ekki varð um villzt, að þar sem hún var, hafði leikhúsið eignazt mikil- hæfa unga leikkonu. Svend Gade hafði sett leikinn á svið, og Svend Methling, Johannes Poulsen og Karen Poulsen (þá Thalbitzer) voru nánustu meðleikend- ur. Þrátt fyrir allt varð það þó harmleikur Grétu, sem gengi þessarar sýningar hvíldi á í leikhúsinu, en sýningarnar urðu 30 á rúmu ári, — frá 1. apríl 1931 til 7. apríl 1932, sem er rnjög há tala á hinni konunglegu sýningaskrá fyrir svo skamman tírna. Það var sem Anna Borg flytti Ijós með sér inn á sviðið og persónugerði hina saklausu, ungu stúlku gagnvart hinum ástfangna — og upp- yngda — Faust, viðsjálum Mefistofeles og Mörtu, dónalegri pútnamóður, en leikkonan unga hreif oss ekki aðeins með hreinleika Grétu í upphafinu, heldur breytileik hlutverksins, er á leið. Vér fylgdumst með, hvernig harmleikurinn óx með henni í einstökum lögrum atriðum, úr skáldlegri byrjun yfir í óróleikann,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.