Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 37

Andvari - 01.06.1964, Page 37
ANDVARI FÁNI ÍSLANDS OG SKJALDARMERKI 35 skjalasafni forsætisráðuneytisins, svo og frummyndin af skjaldarmerkinu eins og það varð 1919. Frásögn Heimskringlu um landvætt- irnar er þannig: „Haraldr (Gormsson Danajkonungr bauð kunnugum manni at fara í hamför- um til lslands og freista, hvat hann kynni segja honum. Sá fór í Iivalslíki. En er hann kom til landsins, fór hann vestr fyr- ir norðan landit. Hann sá, at fjöll öll ok hólar váru fullir af landvéttum, sumt stórt, en sumt smátt. En er hann kom fyrir Vápnafjörð, þá fór hann inn á fjörðinn og ætlaði á land at ganga. Þá fór ofan eptir dalnum dreki mikill, ok fylgdu hon- um margir ormar, pöddur ok eðlur ok hlésu eitri á hann. En hann lagðisk í brot ok vestr fyrir land, allt fyrir Eyjafjörð. Fór hann inn eptir þeim firði. Þar fór móti honum fugl svá mikill, at vængirnir tóku út fjöllin tveggja vegna, ok fjöldi annarra fugla, bæði stórir ok smáir. Braut fór hann þaðan ok vestr um landit ok svá suðr á Breiðafjörð ok stefndi þar inn á fjörð. Þar fór móti honum griðungr mik- ill ok óð á sæinn út ok tók at gella ógur- liga. Fjöldi landvétta fylgdi honum. Brot fór hann þaðan ok suðr um Reykjanes ok vildi ganga upp á Víkarsskeiði. Þar kom í móti honum bregrisi ok hafði járn- staf í hendi, ok bar höfuðit hærra en fjöllin, ok margir aðrir jötnar með hon- um. Þaðan fór hann austr með endilöngu landi — „var þá ekki nema sandar ok öræfi ok brim mikit fyrir útan, en haf svá mikit millim landanna," segir hann, „at ekki er þar fært langskipum." Þá var Brodd-Helgi í Vápnafirði, Eyjólfr Val- gerðarson í Eyjafirði, Þórðr gellir í Breiða- firði, Þóroddr goði í Ölfusi." (Fleims- kringla I, útg. Fornritafélagsins 1941, bls. 271). Matthías Þórðarson drepur á í leiðar- vísi Lim Þjóðminjasafn Islands árið 1914, að tengsl muni vera milli landvætta- sagnarinnar í Fleimskringlu og sagna Biblíunnar um kerúbana, og Jónas Guð- mundsson, fv. alþingismaður, ræðir ítar- lega um þetta efni í grein í tímaritinu „Dagrenning“ árið 1946, sem hér yrði of langt að rekja. Við endurreisn lýðveldisins 17. júní 1944 var gefinn út á Þingvelli við Öxará svofelldur forsetaúrskurður um skjaldar- merki íslands: „Skjaldarmerki Islands er silfurlitur kross í heiðbláum feldi, með eldrauð- um krossi innan í silfurlita krossinum. Armar krossanna skulu ná alveg út í rendur skjaldarins á alla fjóra vegu. Breidd krossmarksins skal vera % af breidd skjaldarins, en rauði krossinn helmingi mjórri, þþ af breidd skjaldar- ins. Efri reitirnir skulu vera rétthyrnd- ir, jafnhliða ferhvrningar og neðri reit- irnir jafnbreiðir efri reitunum, en þriðjungi lengri. Skjaldberar eru hinar fjórar land- vættir, sem getur í Heimskringlu: Griðungur, hægra megin skjaldarins, bergrisi, vinstra megin, gammur, hægra megin, ofan við griðunginn, og dreki, vinstra megin, ofan við bergrisann. Skjöldurinn hvílir á stuðlabergs- hellu.“1) Forsætisráðherrann, dr. Björn Þórðar- son, hafði falið þeim Vigfúsi Einarssyni, skrifstofustjóra í atvinnumálaráðuneyt- inu, Matthíasi Þórðarsyni, þjóðminja- verði, Agnari Kl. Jónssyni, skrifstofu- stjóra í utanríkisráðuneytinu og Birgi Thorlacius að gera tillögu um gerð skjald- armerkis lýðveldisins. Varð nokkur um- ræða meðal þessara manna um að taka bæri aftur upp sem skjaldarmerki fálka á bláum skildi, en niðurstaðan varð þó sú, að breyta ekki um skjaldarmerki og hverfa 1) Stjtíð. 1944, A, bls. 54. 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.