Andvari

Árgangur

Andvari - 01.06.1964, Síða 39

Andvari - 01.06.1964, Síða 39
ANDVARI FÁNI ÍSLANDS OG SKJALDARMERKI 37 Hjalta Þorsteinssyni, prófasti í Vatns- firði. Ern þarna fagurlega dregnar mynd- ir af 163 innsiglum geistlegra og verald- legra höfðingja, og auk þess er mynd af innsigli landsins 1593.1) A eftirgerð Hieronymus Gourmonts af íslandskorti Olaus Magnus frá 1539, sem prentað var í París 1548, er skjaldarmerki fslands ó- flattur og að því er virðist óhausaður þorskur með kórónu yfir. Vinstra megin á kortinu er norska skjaldarmerkið. Merk- in eru ekki í litum. En á íslandskorti, sem Þórður biskup Þorláksson í Skálholti gerði árið 1670, er íslenzka skjaldarmerkið efst í hægra horni, gylltur þorskur, flattur, á rauðum skildi, hvítjöðruðum, með gull- inni kórónu yfir, cn sitt livoru megin skjaldarins er fálki með þanda vængi og styðja þeir skjöldin með annarri klónni. Á öðru íslandskorti Þórðar biskups frá 1668 er skjaldarmerkið neðst í vinstra horni, en skjöldurinn er þar gulbrúnn og utan með blágræn brydding. Karl og kona halda skildinum á loft milli sín).2) Á predikunarstól úr kirkju Brynjólfs Sveinssonar í Skálholti, þeirri er hvrjað var að smíða árið 1650, er þorskmerkið málað á hurðina. Predikunarstól! þessi mun hafa verið smíðaður erlendis og hafa nýr verið tekinn í notkun í Skálholts- dómkirkju. Nú er predikunarstóllinn í hinni nýju Skálholtskirkju, sem vígð var og afhent þjóðkirkjunni 21. júlí 1963. Þá er þorskmerkið ennfremur á skírnarfont- inum úr þessari sömu kirkju og sama verzlunarfélagið (Islands Compagnie) gaf henni hvorttveggja. Þótt hlái liturinn sé að sögn Sigurðar málara ríkjandi í klæðnaði hér á landi gegnum aldirnar og þau skjaldarmerki íslenzkra höfðingja, sem kunn eru frá 15. 1) AM. 216, 217 og 218, 8°. 2) Islands kortlægning, Munksgaard, Khöfn 1944, hl. 12, 40, 42. öld, séu á bláum grunni, þá tíðkuðust vitanlega fyrr meir einnig aðrir litir, svo sem rauð klæði og rauðir skildir, þótt þar væri ekki um ciginleg skjaldarmerki að ræða. Ólafur pá átti rauðan skjöld með gullnu ljóni, Ilelgi Njálsson rauðan skjöld með hirti og Bolli Bollason rauðan skjöld og dreginn á riddari. Má vel vera, að blámi fjallanna, fegurð hins sumar- bláa íslenzka himins og hafs eða áhrif frá bláa litnum í hinum forna skozka fána (St. Andrews) eða hinum sameigin- lega fána Englands, Skotlands, írlands og Wales (Union jack), sem var aðeins nokkurra ára (síðan 1801) þegar Jörund- ur var hér við stjórn, hafi ráðið litnum í fána Jörundar, er hafði dvalizt löngum með Englendingum. Einnig gæti Jrað einfaldlega hafa ráðið, að nærtækasta efnið í þennan skyndifána hafi verið blátt. Hvað sem um það er, þá virðist það hafa verið óumdeilt á öllum stigum fána- málsins, að aðalliturinn í fána íslands skyldi vera blár. Hinn 12. júlí 1809 var svo slíkur fáni, sem að framan er lýst, — blár með þrcm- ur þorskfiskum í horni, — dreginn að hún á Petræusarvöruhúsi, en það stóð við Hafnarstræti sunnanvert. Freigátan „Margaret and Ann“, sem lá fyrir landi undir brezku merki og oddveifu, skaut ellefu skotum fánanum til heiðurs. Fáni þessi leið undir lok með Jörundi, en þetta er fyrsta hugmyndin um sérstak- an þjóðfána handa íslandi. III. Sigurður Guðmundsson málari mun fyrstur hafa hreyft því, að fálkinn væri sæmilegra merki lands og þjóðar en þorsk- urinn. Þegar hann talar um merki á hann vafalaust bæði við fána og skjaldarmerki, því að menn virðast lengi vel ekki hafa gert mikinn greinarmun á þessu tvennu. Ilugmynd Sigurðar var, að merkið og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.