Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 47

Andvari - 01.06.1964, Side 47
ANDVARI FÁNI ÍSLANDS OG SKJALDARMERICI 45 í fyrsta lagi með bláhvíta fánanum ó- breyttum, í öðru lagi með þeim fána, að viðbættri stórri hvítri fimmblaða stjörnu í efra stangarreit eða í þriðja lagi með þrílita fánanum. Sjö nefndarmenn rituðu þó undir nefndarálitið með fyrirvara og einn (Guðmundur Björnson) lýsti sig sam- þykkan öllu, sem ekki færi í bága við álit hinnar stjórnskipuðu fánanefndar. Síðan báru fjórir nefndarmanna, Guð- mundur Hannesson, Sigurður Gunnars- son, Sigurður Stefánsson og Pétur Jóns- son, fram breytingartillögu, er fól í sér að fella burtu að mæla með stjörnufánan- um.1) Var sú breytingartillaga samþ. með 20 atkvæðum gegn 18, og þar með ákveð- ið að mæla með bláhvíta fánanum og þrílita fánanum. Þess má geta hér, að nokkrar umræður urðu um kostnaðinn við hina stjórnskip- uðu fánanefnd — sem mun hafa verið fyrsta milliþinganefndin, sem skipuð var hér á landi, án tilefnis frá Alþingi. Gerði Einar Arnórsson fyrirspurn á þingi 1914 um kostnaðinn — ekki til að hneykslast á honurn, heldur til að eyða kviksögum, sem um hann gengju. Sagði Einar Arn- órsson, að þess hefði jafnvel verið getið í blöðum, að greiddar hefðu verið til nefnd- arinnar sex þúsund krónur og að ógreidd- ar væru tvö þúsund krónur. Upplýsti ráð- herra, að allur kostnaður við nefndina hefði orðið kr. 6.164,26. Ráðherraskipti höfðu orðið um þing- tímann. Hannes Hafstein lét af embætti, en við tók Sigurður Eggerz. Á ríkisráðs- fundi í Kaupmannahöfn 30. nóvember 1914 skýrði ráðherra konungi frá gangi fánamálsins og lagði til að konungur stað- festi þrílita fánann. En konungur neitaði að svo komnu að gefa út úrskurð urn gerð fánans, þrátt fyrir gefið fyrirheit. Stafaði þetta af því, að deila var milli Al- 1) Alþtíð. A, 1914, bls. 678, 761. þingis og ráðherra annars vegar og kon- ungs hins vegar um uppburð íslenzkra sérmála í ríkisráði, og neitaði konungur að staðfesta stjórnarskrárfrumvarp, er Al- þingi hafði samþykkt og^ráðherra lagt fyrir hann með ákveðnum fyrirvara um uppburð íslenzkra sérmála fyrir konungi. Hafði ráðherra fyrst lagt stjórnarskrár- frumvarpið fyrir konung til staðfestingar, og er konungur neitaði, lýsti ráðherra yf- ir, að hann myndi biðjast lausnar. Kon- ungur neitaði síðan einnig að gefa út úr- skurð um gerð íslenzka fánans, þótt hann hefði áður sagt, eins og í skýrslu fána- nefndarinnar greinir, að hann myndi staðfesta hvora þá fánagerð, sem nefndin hafði bent á. Ráðherra tók þá fram, að neitun konungs um að gefa út fánaúr- skurðinn, styrkti sig enn betur í þeirri fyrirætlan að segja af sér ráðherraemb- ætti, og gerði hann það á þessum ríkis- ráðsfundi.1) Nokkru síðar tók Einar Arnórsson við ráðherraembætti, og 19. júní 1915 var gefinn út konungsúrskurður, sem með til- vísun til konungsúrskurðar frá 22. nóvem- ber 1913 ákveður gerð fánans, þannig: „Heiðblár (ultramarineblár) með hvítum krossi og hárauðum krossi innan í hvíta krossinum. Armar krossanna skulu ná al- veg út í jaðra fánans á alla 4 vegu. Breidd krossmarksins skal vera % af breidd alls fánans, en rauði krossinn helmingi mjórri, 1/9 af breidd fánans. Reitirnir við stöngina skulu vera rétthyrndir ferhyrningar og allar bliðar þeirra jafnstórar; ytri reitirn- ir skulu vera jafnbreiðir stangarreitnum, en helmingi lengri. Hlutfallið milli breiddar fánans og lengdar hans verður sem 18:25.“2) Er þetta hin sama fángerð og konungur neitaði að staðfesta 30. nóv- ember 1914. 1) Umræður í ríkisráði, Lögbbl. nr. 50/1914. 2) Stjtíð. 1915, A, bls. 23. 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.