Andvari - 01.06.1964, Qupperneq 57
BJARNI BENEDIKTSSON:
HJÁ YÖGGUNNI
Móðirin heyrir barnið gráta inní herberginu. Hún bregður við eins og
ævinlega þegar hún heyrir þetta dökka hljóð, og stendur jafnskjótt hjá vöggunni.
Andlit barnsins hefur afskræmst af gráti í einu vetfangi. Hún hefur aldrei heyrt
barn gráta eins og þennan dreng. Hún á við, að hún hafi aldrei séð þvílíkan
grát. Því önnur börn gráta með ópi og kveinstöfum, en grátur þessa drengs er
hálfkæft urr og ummyndun andlitsins og allrar veru hans. Það er grátur sem
ekki gerir boð á undan sér, heldur brýst fram með fullum styrk í einni svipan.
Henni stendur stuggur af þessum gráti, en ann drengnum þeim mun heitar.
Hún hefur sýnt lækni, hvernig hann grætur.
— Börn gráta allavegana, sagði læknirinn og yppti öxlum. Sterklegur
grátur . . . verður einhverntíma maður úr þessum pilti, sagði hann og leit til
móðurinnar með mannþekkingarsvip.
Hún lyftir drengnum upp úr vöggunni, og það sljákkar í honum. Hún
er nýbúin að skipta á honum, en hann er orðinn blautur eigi að síður. Hún
tekur af honum bleyjurnar og smyr rauða nárana. Drengurinn skríkir við sem
snöggvast. Hún vefur reifunum þétt um stutta skankana og þaninn belginn og
festir seinast endana með sikkrisnælu. Hún lyftir honum og púar í hálsakotið
á honum og leggur hann aftur niður í vögguna. Hún snýr sænginni við og ýtir
henni niður með hliðunum og dumpar létt oná hana með lófanum.
— Sofðu nú, vinur, segir hún, virðir hann fyrir sér stutta stund með
áhyggjusvip og fer aftur fram í eldhúsið.
Eftir andartak heyrir hún barnið gráta aftur inní herberginu. Hún hregður
við, og stendur á samri stund hjá vöggunni. Andlit barnsins hefur afskræmst
í einu vetfangi.
— Ertu vcikur, drengurinn minn? spyr hún í þúsundasta sinn, og tekur
hann í fang sér. Hann heldur áfram að gráta, undarlega kæiðum og grimmum
gráti sem stígur upp úr hyldýpi þessa litla líkama og umhverfir andliti hans.
Hún híar honum í fangi sér, en liann lætur sér ekki segjast. Ertu veikur,
elsku drengurinn minn? segir hún, og geigurinn flæðir inn í brjóst hennar
frá ókunnum upptökum. Hún veit hann er ekki svangur. Samt heldur hún á