Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 60

Andvari - 01.06.1964, Side 60
58 I3JARNI BENEDIKTSSON ANDVARl til að geta barn. Anna var enn á lífi, og þau voru ekki skilin að lögunr. Veslings Anna, hugsaði hún óvænt. Veslings gamla Anna. Þvínæst dó veslings gamla Anna. Friður guðs sé með henni, hugsaði Klara frænka og meinti það. Mánuði seinna giftist Elías frændi Fransisku. Litlu síðar eiguðust þau dóttur. Huh! sagði Klara lrænka, og vissi ekki betur en henni stæði hjartanlega á sama. Hún átti nætur sínar sjálf og hagnýtti eignar- réttinn án þess að spyrja leyfis. Drengurinn hefur hætt við að sofna og er tekinn að garnbra við sjállan sig. Bla bla, segir drengurinn og glímir við Jitlu puttana sína með litlu puttunum sínurn. Augabrúnir hans eru sléttar, og það skín af blárna inní sorta augnanna. Ababa, segir drengurinn á alþjóðamáli hvítvoðunganna. Móðirin lýtur niður að honum og púar í hálsinn á honum hlýjum anda elskunnar. — Ma ba, segir drengurinn og skríkir í vöggunni. — Hjartað mitt, svarar móðir hans og kjáir frarnan i hann. — Bla bla, áréttar drengurinn. Degi er tekið að halla. Flún hélt um tíma, að hún ætti kannski að vera trúlofuð. Sarnt var hún ekki viss í sinni sök. Pilturinn var erindreki hjá verzlunarfyrirtæki og löngum í ferðalögum. Eitt sinn sem oftar höfðu þau ráðstafað nóttinni eftir morgun- daginn. Þegar morgundagurinn rann, var pilturinn sendur fyrirvaralaust út á land að reka erindi fyrirtækisins. Seinna þann sama dag var henni tjáð, að það væri rnaður að spyrja eftir henni. Hún gekk til dyra. Það var Elías frændi. Hún var hissa að sjá hann allt í einu í höfuðstaðnum og heilsaði honum opnari rómi en efni stóðu til. Flvað vildi hann? — Eg kem frá jarðarför konu minnar, sagði hann. — Ó . . . ég votta samúð rnína, svaraði hún. — Viltu verða ráðskona hjá mér? spurði hann. Vegna barnanna? Maður svarar ekki slíkri spurningu á þröskuldinum. Hann bauð henni að borða úti um kvöldið til að ræða málið frekar. Hann var tuttugu og þremur árurn eldri en hún og kunni ekki að búa sjálfum sér hamingju, hvað þá öðrum. En hann var þó alténd raunamaður í dag, og pilturinn utanbæjar. Flún lofaði að korna. Flún var mjög tregðufull yfir matnum, en þótti ekki vont að láta hann dekstra sig. Augu hans voru svört. Augu hans voru svartir hnettir yfir djúpum eldum. Við þriðju skálina svall henni skyndilega girnd í brjósti. Líkarni hennar varð að einum punkti og vitund hennar rauðar bylgjur, og frændi hennar steig fram úr briminu. Síðkvöld í Iiöfuðstaðnum. Nótt. llm morguninn liafði hún gengið úr skugga um efrivörina á manninum. Hún var alveg með felldu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.