Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 81

Andvari - 01.06.1964, Side 81
ANDVARI DANSKAR BÓKMENNTIR 1940—60 79 heppnazt að vinna úrslitasigur, þrátt fyr- ir góða hæfileika og mikla kunnáttu, og „De r0de enge“ er enn aðalverk hans. Michael Tejn (1911) varð þekktur á fimmta tug aldarinnar fyrir stóran skáld- sagnaflokk (1942—46) um þróunarferil drengs til fullorðins manns, þar sem sér- stök rækt er lögð við að lýsa þroskaferli ásta- og kynferðislífsins. I þessum fjórum sögum, sem hann hefur seinna snúið í tvísöguna ,,Feður“ — „Synir", vill hann stuðla að eðlilegri kynsiðfræði hjá ungu fólki á millibilsaldri, þar sem það er skoð- un hans, að á þann hátt muni vera hægt að frelsa fólk frá óæskilegum hömlum og gera því fært að lifa frjálsara og heil- brigðara lífi, bæði líkamlega og andlega. En sá hængur er þó á, að þegar mök ungl- inganna bera ávöxt, reynist höfundinum um megn að finna annað ráð en það að faðir og sonur sættist, og vill þá svo heppi- lega til, að faðirinn er vel loðinn um lóf- ana og tekur að sér að sjá fyrir bæði for- eldrum og barni, þangað til þau geta farið að spjara sig sjálf. Stutt skáldsaga „San- nie" (1945) er þó betur heppnuð sem túlkun þessa lífsviðhorfs. 1 henni hefur höfundurinn fullorðna konu fyrir aðal- persónu, og með því sniðgengur hann ýmsa mjög óþægilega erfiðleika, sem hann rataði í í skáldsagnaflokknum. Annan boðskap en þennan hefur Michael Tejn bersýnilega ekki haft, og úr því að hann hefur ekki getað séð viðfangsefnin frá öðrum hliðum, hefur hann hætt að skrifa. Michael Tejn verður ekki flokkaður með harðsoðnum höfundum, þótt hann hafi lært töluvert af þeim. Aðaláhugi hans er á hinu sálræna sviði, eða öllu heldur sambandi þess við hið líkamlega. Og þannig verður hann eins konar tengi- liður við þá höfunda, sem nú verða tald- ir, en þeim er hið sálræna algert aðal- atriði. En áður en við förum að tala um þenn an flokk höfunda, skal snöggvast að því vikið, að þjóðfélagsskáldsagan frá fjórða tugnum á enn sina fulltrúa, og nokkrir minni háttar höfundar stunda hana með kostgæfni. Meðal ungra höfunda er að- eins einn, sem á skilið að vera nefndur sem dæmi um þessa stefnu, Hilmar Wulff (1908). Skáldsagnabálkur hans um pólsku sveitaverkamennina í Danmörku, „Vejen til livet" (1947), „Livets br0d“ (1948) og „Forjættelsens dag“ (1949), hefur svo marga góða eiginleika, að honum mun ef til vill verða lífs auðið. Rétt er einnig að nefna Hans Mfilbjerg (1915), sem með skáldsögunni „Gárden" skapaði einu meiri háttar sveitasöguna, sem hingað til hefur birzt síðan stríði lauk. Timabilið eftir stríð hefur annars öðru fremur borið mark þeirra tveggja full- trúa hinnar sálrænu skáldsögu, sem áður voru nefndir, Martins A. Hansens og H. C. Branners, og einnig Karenar Blixen, svo að ekkert er eðlilegra en að yngsta rithöfundakynslóðin sé sama marki brennd. Ekkert að ráði liggur eftir þessa höfunda enn, svo að enginn þeirra hefur enn unnið sér þann sess í vitund almenn- ings og gagnrýnenda, að hægt sé að tala um neinn verulegan bókmenntaleiðtoga þeirra á meðal. En í allri ringulreiðinni, sem fyrst virðist blasa við, má þó ef til vill greina áttir. Meðal hinna eldri staldrar maður við Finn Gerdes (1914). Lítið liggur eftir þennan gagnvandaða höfund, en hann hefur gefið út nokkrar skáldsögur, sem að hugmyndum til sýna samband við Martin A. Hansen og Branner. En ef til vill einmitt vegna þess að hann hefur verið háður þeim, hafa sögur hans ekki megnað að lifa af áratuginn 1950—60. Smásagnasöfn hans eru miklu viðameiri, „De blá gardiner" (1943) og „Sorte engle" (1945), sem lýsa sálrænni framvindu af hárfínni list. Hin umfangslitlu ritstörf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.