Andvari - 01.06.1964, Qupperneq 101
ANDVARI
ÍSLENZIC ÞJÓÐMÁL 1850—52
99
Blaðið er búið, og verið því blessaðir og sælir -— segir J. Samsonsson, sem líka
biður kærlega að heilsa hr. E. Guðmundssyni gamla á Lambanesi og fl. og biður að
lesa honum þetta bréf, ef hann vill heyra. Verið sælir.
E. S.
Eftir fyrri venju hafa þingmenn haldið síðustu veizlu og boðið konungs-
fulltrúa. En nú halda þeir sjálfum sér veizluna, en buðu ekki konungsfulltrúa, og af
þeirri orsök þáðu ekki konungkjörnir boðið og ekki síra Þórarinn Kristjánsson....
Keldudal, þann 26. júní 1852.
Heiðraði vinur!
Ég þakka yður mikið kærlega fyrir tilskrifið núna síðast.... og sendi yður.....
umburðarbréf mitt til ykkar hreppstjóranna í austurparti Skagafjarðarsýslu, hvors
innihald ég óska þér og aðrir skynsömustu mennirnir vilduð yfirvega, þó ég fari
ógreinilega og óljóslega yfir útskýringu þess heimuglega bréfs, sem ég aðeins bendi
til, en nú má ei sýna öðrum en einstaka þagmælskumönnum. Það er hérna að segja
frá hra. Jóni Guðmundssyni, öðrum, sem sigldi með erindi þjóðfundarins í fyrra,
hvors afdrif þér og aðrir heyrt hafa nú i kgl. auglýsingu á manntalsþingum.
I þessu mjög heimuglega bréfi til mín, segir Jón mér sem víst, að konungur gefi
Trampe greifa hér fullmagt til að útnefna fyrir sig hér á landi þá 6 konungkjörnu
menn eftir velþóknan, sömuleiðis muni konungur auglýsa öllum kjörstjórum, er stýra
kosningum í haust til væntanlegs Alþingis að ári — fullkomið bann sitt fyrir því, að
nokkurn embættismann megi þjóðin kjósa af þeim, er undirskrifuðu ávarp þjóðfund-
arins til konungs, og eigi heldur neinn mann af þeim 8, er voru í meiri hluta stjórnar-
málsnefndarinnar, fljótt sagt engan, sem ei fylgdi meiningu hinna konungkjörnu í
hvervetna. Hvörnig lízt yður á þetta? Mér kemur það svo fyrir sjónir sem kænsku-
bragð stjórnarinnar til að gjöra oss þingið ómögulegt, og að vér sjálfir þannig neyðumst
til að afbiðja þing vort, um hvort vér áður höfum beðið endurreist. Þá getur líka
stjórnin þvegið hendur sínar fyrir öllum blaðamönnum Norðurálfunnar, en kennt oss
um það, er henni var þó eingöngu að kenna.
Þessu bið ég yður að sleppa ekki í hættulega staði vegna herra Jóns Guðmunds-
sonar, sem engri vinsælu hefur nú þar syðra að fagna og stendur með konu og börn-
um brauðlaus, vanfær á öðrum fæti, umkringdur af kveljandi spéfuglum, vinum
harðstjórnarinnar og kgs.
Mikið vona ég eftir að sjá yður á héraðsfundi, og þá get ég sýnt yður umgetið
bréf heimuglega, hvar í þér líka fáið að sjá, að bréfleg krafa Trampes í vetur í um-
burðarbr. með þjóðfundar kostnaðargjaldið er afturkallað af stjórninni, sem öldungis
ólöglegt og ósamkvæmt gjaldalögum ríkisins. Meina menn, að þeir Jónar hafi málað
það upp fyrir viðkomandi stjórnarráði í réttri mynd. — Voðalega lízt mér á Alþingis
endurreisn, undir núdrottnandi undirbúningi harðstjóra og þeirra vina. Þeim er nóg,
sem skilur-.
Verið með öllum yðar kærlega
kvaddur af þ. v. vin
J, Samsonssyni,