Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1964, Side 114

Andvari - 01.06.1964, Side 114
112 TÓMÁS HELGASON ANDVARI er af slíku má ætíð hafa. Að sjá hið nýja og kynnast því. I apríl 1872, þegar Sveinn hefir lokið burtfararprófinu frá Steini, hefir honum ekki tekizt að fá það tækifæri, sem hann þráði mest. Það var að komast heim til íslands og starfa þar að framförum í hún- aði. Þess vegna tekur hann sér starf í Noregi, bæði til þess að hafa atvinnu og innvinna sér pcninga til verkfærakaupa. Einnig til þess, eins og Jón Sigurðsson Iiafði rætt um við hann í bréfi, að æfa sig vel í öllu því verklega, sem hann hafði lært í skólanum. Segir Sveinn Jóni það í bréfi síðar, að hann megi vera viss um, að hann geri slíkt. Þó telji hann sig svo vel að sér í því, er hann hafði lært, að hann geti vel kennt það öðrum, er hánn komi heim. Rúmum mánuði síðar er ennþá sama umræðuefnið: Að komast til starfa heima. Hefir Sveinn þá leitað til Dana, sennilega stjórnarinnar, um styrk til leiðbeininga- ferðanna. Ef það gengur eigi, hefir hann talað við Pétur Eggerz á Borðeyri um það, að hann reyni að koma sér fyrir í Húnavatnssýslunni, svo að hann geti ferð- ast um meðal fólksins. Hafði Pétur hald- ið, að þeir mundu vilja það þar, þar sem þeir hefðu gert ýmislegt jarðyrkjunni til framfara. Leggur nú Sveinn allt kapp á að komast heim. Er farin að leiðast úti- vistin. Nú hefir hann heyrt að stofna eigi jarðyrkjuskóla á íslandi. Segir hann gott til þess að vita, að því verði framgengt sem fyrst. Er viss um, að það gæti orðíð til mikils gagns fyrir landið, ef hægt yrði að fá duglega kennara. Talað hefir verið um að stofna fjóra skóla, en það lýst honum ekki á. Telur betra að hafa tvo vel útbúna heldur en fjóra af vanefnum gerða. Segist hann gjarnan sknli skrifa það, sem hann viti um Stein, hvernig hann hefir verið stofnaður, hvað hann hefir kostað, hvernig kennslu er fyrir komið, og hvað þar sé kennt af bóklegum fræð- um og verklegum; hvernig jarðyrkjunni er þar bagað og hvaða verkfæri eru þar notuð; hvaða kjör drengirnir og kennar- arnir hafa; hvaða liús þar eru höfð o. s. frv. Allt, sem þar að lýtur. „Ef þér viljið þetta, svo skal ég gjöra það svo gott sem ég gct, þá mætti hafa það til hliðsjónar við stofnun á skólanum heima.“ Síðan biður hann Jón, ef hann viti nokkuð, hvernig haga eigi til þessum skól- um, að láta sig vita, því að það þætti sér gaman að heyra. Þetta loforð, að skrifa um skólann, efn- ir Sveinn svo, að í Nýjum Félagsritum, 30. árgangi árið 1873 eru 27 fyrstu blað- síðurnar með grein eftir hann og nefnist hún: Um jarðyrkjuskóla. 1 sama bréfi lofar hann því að skrila grein um áburð og áburðarauka. Birtist grein þessi í sama árgangi Félagsritanna. Skrifar hann þar um allar þær áburðar- tegundir, sem til eru, en hinum, sem flytjast mættu hingað frá öðrum löndum, segist hann öllum sleppa. Telur nógan tíma til þess að skrifa um þær, þegar jarðyrkjan sé orðin svo mikil, að hún þarfnist meiri áburðar en land vort geti gefið. Meira skrifar Sveinn um stofnun bún- aðarskóla. I VII. árgangi Andvara 1881 er greinin: Llm stofnun búnaðarskóla á ís- landi. Rekur hann þar flest af því, sem um það mál hefir verið skrifað, umræður þær, sem fram fóru á Alþingi um stofnun Möðruvallaskólans. Hann hefir sem sagt tínt upp þær helztu skoðanir, sem fram hafa komið um það, hvernig stofna skuli landbúnaðarskóla á Islandi. I lann hefir sýnt fram á afdrif hinna norsku skóla, látið í Ijós skoðun sína um tilhögun á kennslu og fyrirkomulagi öllu á skól- anum. Llann hefir byggt það á þeirri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.