Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 134

Andvari - 01.06.1964, Page 134
ÞÓRÐUR TÓMASSON: Ljós og eldur Frá örófi alda hafa menn tignað ljósið og höfund þess. Á stöllum heiðinna hofa brann eldur, sem aldrei var látinn kulna, og heilög kirhja tók Ijósið í þjónustu sína sem tákn hins góða. Höfundur Hávamála rnælti ekkert út í bláinn, og hann taldi eld ásamt sólarsýn í röð þess, sem bezt var með mönnum. Eldurinn gerði norðlægar slóðir byggi- legri, og sólin var Iiin mikla móðir alls lífs. Hjá henni urðu lítil Ijós mannsins að engu: Ljósið meðan í myrkri er mikla birtu gefur af sér, en þegar sólin á það skín alla missir það geisla sín. Á sól eða himintungl mátti enginn henda, og enginn mátti storka þeim nema taka út fyrir það sína hegningu — ofan að. Sólin var hin bezta guðsgjöf og sú líkn mikil að hafa göngu hennar fyrir augum, sjá hana síga til viðar að kvöldi og rísa að morgni. Svo vondir gátu menn þó orðið, að frá þeim var tekin sólarsýn. Axlaí-Björn, morðinginn mikli, sá ekki til sólar, þó hún Ijómaði í heiði. Aldrei var eins dauft yfir lífi mannsins og í krappasta skammdeginu, þegar vart eða ekki naut sólar og lítil föng á að reka myrkrið á flótta. Blessuð jólin rufu sort- ann htið eitt, og svo var sú huggun nær- tæk, að nú færi sólin blessuð að hækka göngu sína, að sönnu aðeins um hænufet dag hvern, en safnast, þegar saman kem- ur. Þá var líka gott að sofna út frá þeirri vissu, að við rekkjustokkinn stóð ljósberi, sem aldrei brást: Láttu nú Ijósið þitt loga við rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti signaður Jesú mæti. f þeirri trú söng móðirin barn sitt í svefn með þessu stefi: Sofðu í friði, vaknaðu í Ijósi. Svo bið ég fyrir mínu barni, minn Drottinn það kjósi. Ógrynni eru til af kveðskap, sem gengur í svipaða átt. Ljósmóðir og Ijósbarn eru forn orð í íslenzku máli. Barnið fæddist til ljóssins, og því var gefið Ijósið að fylgju. Faðirinn bar Ijós í kross yfir barnsfylgjunni, til þcss að Guð og ljós fylgdi barni hans á ævivegi. Ljósfylgjur voru mönnum til verndar, fóru fyrir þeim og boðuðu komu þeirra. Frá ljósi sofnuðu flestir svefninum langa, og Ijós var látið loga yfir líkbörum rnanna. Þannig varðaði l jósið veg manns- ins frá vöggu til grafar. Þó gat stundum orðið misbrestur á því, að rnaður væri ljóssins barn. „Þeim er mein, sem í myrk- ur rata“, var viðkvæði manna um þá, sem villtust af vegi Ijóssins — og meir í ætt við vorkunn en álas.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.