Andvari - 01.10.1967, Blaðsíða 15
ANDVARI
THOR THORS
117
til laga að nýrri kosningalöggjöf í samræmi við hina breyttu stjórnarskrá, en
ríkisstjórnin hafSi látiS undirbúa slíkt frumvarp fyrir þingiS. Þó aS hin nýja
kjördæmaskipun, sem nú hafSi orSiS samkomulag um, væri ekki í samræmi
viS tillögur Thors Thors, sem hann hafSi sett fram í tímaritinu Vöku, og
áSur er frá greint, var þó hér unr mjög mikla réttarbót aS ræSa, og þaS hlaut
því aS vera Thor mjög kærkomiS aS hefja þingmennsku sína meS því aS vinna
aS slíkri lagasetningu. Idann varS því strax á fyrsta þinginu mjög umsvifa-
mikill þar sem hann var m. a. framsögumaSur stjórnarskrárnefndar, sem fékk
kosningalagafrumvarpiS til meSferðar. I jómfrúr-ræðu sinni á Alþingi segir
Thor Thors í upphafi svo:
„Þessi breyting (á kosningalögunum) miðar að því að tryggja hið
flokkslega réttlæti hér á þingi meira en áður hefir átt sér stað og rýmka
kosningaréttinn að verulegum mun. Um hið nýja skipulag þarf ekki að
fara mörgum orðum, en því ber að fagna, að þetta spor hefir verið stigið,
því það hlýtur að vera grundvöllur hins sanna lýðræðis og varanlega þing-
ræðis, að allir flokkar fái fulltrúa á þingi í sem nánustu hlutfalli við at-
kvæðamagn þeirra hjá þjóðinni. 1 raun og veru er það takmark þessa kosn-
ingalagafrumvarps að skapa lifandi kerfi, ef svo má að orði kveða, innan
þess stakks, sem stjórnarskráin sníður, og jafnframt að tryggja sem bezt
hið nýja skipulag, sein ætlazt er til, að komi til framkvæmda þegar stjórnar-
skrárbreytingin öðlast gildi. Þetta hvorttveggja hygg ég, að hafi tekizt
sæmilega með því frumvarpi, sem hér liggur fyrir, og um það mun ekki
verða deilt í framtíðinni, að það spor, sem nú er stigið, er fram á við, og
þau nýju spor, sem stigin kunna að verða á komandi árum, munu verða
stigin í sömu átt, en eigi aftur á bak“.
Það var annað stórmál, sem Thor Thors hafði áður mótað stefnu sína í,
sem formaður Heimdallar, er til kasta hans kom að beita sér fyrir og vinna að
á Alþingi, en það var löggjöf, sem stuðlaði að auknum skilningi og bættri sam-
búð verkamanna og vinnuveitenda. Á Alþingi 1936 flutti Thor ásamt GarÖari
Þorsteinssyni frumvarp til laga um vinnudeilur. Var það mjög ýtarlegt og vel
undirbúið og fylgdu gagngerðar upplýsingar um löggjöf nágrannalanda á þessu
sviði, reynslu þeirra og skipan mála. I greinargerð frv. segir í lokin:
Aðalverkefni þessa frv. er þetta:
1) Vinnuveitendur og verkamenn og félög þeirra eru viðurkenndir jafn-
réttháir aðilar.
2) Ákveðnar reglur eru settar fyrir ákvörðun verksviptingar og verkfalls.