Andvari - 01.10.1967, Blaðsíða 42
144
JÓHANN HAFSTEIN
ANDVARI
Margur þekkti Thor Thors og mörgum var hann harmdauði öðrum en
íslendingum. Mátti kenna þess glöggan vott við fráfall hans í samúðarkveðj-
urn og umsögnum svo fjölmargra um hið mæta ævistarf hans. Þótt ekki þyki
hlýða að rekja slíkt að ráði, má þó minna á nokkur atriöi i þessu sambandi,
sem segja sína sögu og endurspegla jafnframt almenn viðhorf.
Forseti Bandaríkjanna og kona hans, Lady Bird Johnson, sendu frá Ágústu
samúðarkveðjur þar sem jafnframt segir: „Flið þrotlausa starf scndiherrans í
stjórnartíð fimm Bandaríkjaforseta, samfara alúð hans og góðvild og hinni ein-
lægu ást hans á landi sínu, sem allir, sem þekktu hann, heilluðust af, veldur
því, að við höfum öll misst mikið við andlát hans“.
U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lét svo um mælt: „Hans
verður sárt saknað af öllum samstarfsmönnum hans hjá S. Þ., sem þekktu
hann og dáðu á hinum langa og framúrskarandi ferli hans sem fastafulltrúi
íslands hjá samtökunum".
Adlai E. Stevenson, senr var um mörg ár fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá
S. Þ., taldi hann einn sinna traustu vina og sagði: „Hann var mikill rnaður —
og dáðríkra starfa hans verður lengi minnzt“.
Forsætisráðherra Kanada, Lester B. Pearson, taldi Thor einn sinna elztu
og kærustu vina og segir: „Mér þykir heiður að því að hafa átt samstarf við
hann hjá S. Þ., þar sem hans verður lengi minnzt fyrir ómetanlega þjónustu
og merk störf.“
Hemy Cabot Lodge, sem nú er ambassador Bandaríkjanna í Suður-
Vietnam, minnist átta ára fastafulltrúastarfs síns hjá S. Þ. og segir í því sam-
bandi: „Thor Thors er maður, sem sker sig úr, — ætíð skynsamur, ætíð kurteis
og alltaf kjarkmikill."
Nelson A. Rockefeller, ríkisstjóri í New York fylki segir „að hafa muni
óafmáanleg áhrif aldarfjórðungs sendiherrastarf Thors fyrir Island sem og
óþreytandi elja hans hjá S Þ.“
Richard Beck mælir fyrir hönd Vestur-íslendinga: „Með mikilvægu full-
trúastarfi sínu á erlendum vettvangi áratugum saman hafði Thor innt af hendi
í þágu íslenzku þjóðarinnar það verk, sem seint verður metið til fulls, og sam-
tímis borið hróður hennar víða um lönd. Okkur Vestur-íslendingum hafði
liann verið traustur og hollráður velunnari, og þekki ég það manna bezt eftir
margra ára nána samvinnu okkar í þjóðræknismálunum.”
Charlos P. Romulo, sem um skeið var áhrifamaður á þingi S. Þ. sem
aðalfulltrúi Filippseyja og forseti allsherjarþingsins 1949—1950, (en hann
hefir síðan verið utanríkisráðherra og ambassador og forseti báskóla Filippseyja
síðan 1962), minnist Thors í bréfi til ekkju hans þannig: „Við sjáum enn fyrir