Andvari - 01.10.1967, Blaðsíða 40
142
JÓHANN HAFSTEIN
ANDVARI
erlendum mönnum er einnig hugfólgið, að heppnast megi og lengi standa.
Þess vegna er þjóðlíf vort enn sem „óráðin gáta, fyrirheit". Lýðveldið má aldrei
ósigur bíða.
Að lokum: við skulum vona, að við megum öll halda Islands merki hátt
á lofti og vera fósturjörðinni til sóma og gagns, liver í sínu starfi og hver á sínu
sviði. íslenzka þjóðin verður umfram allt að tryggja það, að nú skuli kraftar
safnast og sundrung jafnast. Þjóðin verður að skilja það, að
„Tími er kominn að takast í hendur
og tryggja það samband, sem stendur".
Góðir íslendingar. Gleðjumst því á minningarstundu og eigum hér saman
ánægjulegt kvöld.“
*
Eflaust er Thor Thors sá Islendingur, sem nánust kynni hefir haft af
stórmennum samtíðar. Þessi kynni voru hæði diplómatísk, pólitísk og persónu-
leg. John F. Kennedy, síðar forseti Bandaríkjanna, var persónulegur vinur
Thors-fjölskyldunnar í Washington. Roosevelt og Churchill kölluðu Thor til
viðtals á örlagastundu Bandaríkjamanna og Engilsaxa í heimsstyrjöldinni síð-
ustu, og svona mætti lengi telja. Thor átti vini og „sambönd" á mikilvægustu
stöðum og sú aðstaða og þeir eiginleikar, sem því eru samfara, verða aldrei
metnir til fjár, einkum hjá hinni minnstu þjóð.
Þegar Sigurður Skúlason, magister, spyr Thor, í áðurnefndri Samtíðargrein,
þessarar spurningar árið 1948: „Elvaða stjórnmálamenn hefur þú hitt, sem þér
finnst mest til um“, — svarar Thor:
„Um jólaleytið 1941 var ég ásamt sendiherrum nokkurra annarra
Evrópuríkja skyndilega kallaður á fund í Elvíta húsinu. Fundarboðendur
voru Roosevelt forseti og Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands.
Bandaríkin voru þá nýkomin í stríðið og Bretar áttu í vök að verjast, eink-
um vegna loftárása Þjóðverja. Útlitið var allt annað en glæsilegt. Þessir
tveir leiðtogar heimsins lýstu af sinni mergjuðu mælsku á hvern hátt óvinur-
inn skyldi yfirbugaður. Tillögur þær, sem Roosevelt forseti hafði yfir um
hergagnaframleiðslu Bandaríkjanna, einkum um flugvélasmíði, virtust langt
uppi í skýjunum, en þær reyndust síðar réttar. Ég dáðist jafnt að báðurn
þessum mikilmennum. Göfugmennska Cordells Hull hefir jafnan heillað
mig. — Á þingum S. Þ. hef ég séð og kynnzt mörgum helztu stjórnmála-
leiðtogum heimsins og hef dáðst að mörgum þeirra. Röggsemi og mælska
Spaaks, forsætisráðherra Belgíu, sem var forseti þingsins 1946, er mér