Andvari - 01.10.1967, Blaðsíða 19
ANDVARI
THOR THORS
121
landinu fór um hendur Kveldúlfs. Umsetning fyrirtækisins var því gífurleg
í samanburði við annan atvinnurekstur í landinu á þessum tíma.
í Kveldúlfi buðust hinum unga framkvæmdastjóra því mörg tækifæri og
mikil viðfangsefni. Um þetta leyti hvarf Ólafur Thors líka von bráðar frá
framkvæmdastjórastörfum, þegar leiðir hans lágu alfarið inn í íslenzkt stjórn-
málalíf. Thor mun hafa unnið í nánustum tengslum við Richard og þá öðru
fremur við fisksöluna og útflutningsverzlunina, en með þeim bræðrum var
all-afmörkuð verkaskipting viS framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
ÞaS er svo síSar, eSa áriS 1934, aS Thor Thors hættir störfum í Kveldúlfi,
en tekur viS framkvæmdastjórn í S. í. F., Sölusambandi ísl. fiskframleiSenda,
ásamt þeim Kristjáni Einarssyni og Ólafi Proppé. Á árunurn eftir 1930 fór aS
gæta mjög hér á landi áhrifa heimskreppunnar miklu. 1933 hafSi hafizt sam-
starf útvegsmanna, er miSaSi aS því aS styrkja aSstöSu þeirra á erlendum
mörkuSum viS saltfisksöluna. Ólafur Thors tók viS ráSherrastörfum af Magnúsi
GuSmundssyni frá 14. nóv. 1932 og til 23. desember sama ár. Jónas Jónsson
hafSi látið höfða sakamál á hendur Magnúsi fyrir afskipti hans af gjaldþrota-
máli, um leið og hann hvarf úr embætti dómsmálaráSherra við stjórnarmyndun
Ásgeirs Ásgeirssonar 1932, en Magnús var dóms- og útvegsmálaráðherra í
þeirri ríkisstjórn. Magnús var sekur fundinn í undirrétti og baðst þá þegar
lausnar frá ráSherraembættinu, en var síðan alsýknaður í Hæstarétti og tók þá
við embættinu aftur. Á þessum stutta ráðherraferli Ólafs gaf hann út bráða-
birgðalög 5. desember 1933 um heimild fyrir ríkisstjórnina til íhlutunar um
sölu og útflutning á fiskframleiðslu ársins 1933. Ástæðan fyrir bráðabirgða-
lögunum var sú, að nauðsynlegt væri að „tryggja og festa það samstarf útvegs-
manna, er hófst á þessu ári og leiddi til stofnunar Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðenda". Síðan hefir í aðalatriðum haldizt það söluskipulag, sem hér var
til stofnað, en þeir Kveldúlfsmenn höfðu haft forgöngu um stofnun þessara
samtaka.
Þegar Thor Thors gerist einn af forstjórum S. I. F., er það starf að veru-
legu leyti framhald af framkvæmdastjórastarfi hans í Kveldúlfi á sviði utanríkis-
verzlunar, saltfisksölunnar, og þessu starfi hélt hann þar til hann fluttist til
Bandaríkjanna. Fór hann á þeim árum víða um erlendis til samningagerða og
fisksölu, m. a. til Brasilíu, Argentínu og Nýfundnalands.
Er augljóst mál, þegar á þessi störf Thors er litið, og stjómmálastörf hans
og menntun höfð í huga, að hann bjó yfir miklu veganesti margþættrar reynslu,
þegar að sendiherrastörfum kom.