Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1967, Page 24

Andvari - 01.10.1967, Page 24
126 JÓHANN HAFSTEIN ANDVARI nutum við fyrst og fremst Thors sendiherra. Eftir á ér kannske hægt að segja, að þessu hefði hver sendiherra getað til leiðar komið. Við, sem fylgdumst með því svo til daglega, hvað var að gerast, vitum hinsvegar vel, að þá þurfti harð- duglegan eftirrekstursmann, fyrst og fremst til þess að fá leyfi til kaupa á efni- vörum til hitaveitunnar. Og svo þurfti að afla leyfa til flutninga hingað. Og enn þurfti að fylgja málinu eftir. Tvisvar sinnum týndist allverulegur hluti efnisins til hitaveitunnar (tveim skipum sökkt). Þá reyndi mest á umboðsmann íslands þar vestra. — Eigi að síður tókst sendiherranum að fá fyllt í skörðin, svo að hitaveitan varð staðreynd, þægileg staðreynd. — Með sömu árvekni um okkar hag stóð Thor á verði um kaup og flutninga á vélasamstæðunni til Ljósa- fossstöðvarinnar 1942—1943. . . . Þó að síðar hafi dregið til ágreinings um stöðu íslands og hlutskipti í samtökum vestrænna þjóða, þá hefi ég aldrei heyrt dregið í efa, að Thor standi jafnan vel á verði um hagsmuni íslands í þeim skiptum öllum, og er skemmst að minnast Sogsvirkjunarinnar nýju, Laxárvirkjunar, áburðarverksmiðjunnar, fyrirhugaðrar sementsverksmiðju o. s. frv. Um öll þessi mál hefir Thor staðið í ístaðinu fyrir íslands hönd, og enda þótt margir aðrir hafi lagt á gjörva hönd, þá skal enginn vanmeta þann skerfinn, sem vafa- laust hefir orðið einna drýgstur, er til úrslita kom.“ Hér við má bæta, að sendiherrann hafði á þessum erfiðu árum milligöngu um útvegun efnis til rafveitunnar í Keflavík og á Eyrarbakka og Stokkseyri. Árið 1944 keypti sendiráðið af flotastjórn Bandaríkjanna einn Grumman flug- bát fyrir Loftleiðir og ári síðar annan fyrir Flugfélag íslands, en bæði flugfélögin áttu fyrr og síðar hauk í horni þar sem Thor Thors var. Þá var Thor Thors ekki síður drjúgur liðsmaður fyrir Eimskipafélag Is- lands. Mun hann mestu hafa áorkað um kaup happaskips þess, Tröllafoss, en á fjölmargan annan hátt iðulega hlaupið undir bagga. Heimili sendiherrans í Washington prýddi íslenzk listasmíði, útskorið skrifborð, forkunnar fagurt, en það var gjöf frá Eimskipafélagi íslands til viðurkenningar og þakkar fyrir ómetan- lega elju hans og afrek í þágu félagsins. Minnast verður þess, að eftir að kafbátar höfðu sökkt báðum skipum Eim- skipafélags íslands, Goðafossi og Dettifossi, voru engin farþegaskip í förum til íslands. Þá voru engar almennar flugferðir til landsins. Fyrir milligöngu sendiráðsins flutti herstjórn Bandaríkjanna hundruðir Islendinga heirn með flugvélum sínum. Á þessum árum var það einnig hlutskipti sendiráðsins að útvega íslenzku námsfólki skólavist vestra, og sendiráðið mun jafnvel um tíma hafa annazt fjárhald fyrir margt af námsfólkinu Að styrjöldinni lokinni færðust út kvíarnar hjá íslenzka sendiherranum í Washington. Thor Thors var skipaður sendiherra í Kanada 19. sept. 1947,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.