Andvari - 01.10.1967, Síða 43
ANDVARI
THOR THORS
145
okkur þinn kæra húsbónda, alvarlegan, staðfastan, alltaf sami heiðursmaðurinn,
alltaf innilegur og tillitssamur. Eg minnist hans eins og hann var vanur að
vera hjá S. Þ., — samvizkusamur í skylduverkum, talaði aðeins þegar honurn
lá eitthvað á hjarta, dáður og virtur af okkur öllum.“
Leiðtogi meirihlutans í öklungadeild Bandaríkjaþings, Mike Mansfield,
gefur Thor þennan vitnisburð: „Hann gat sér orðstír á alþjóðavettvangi og
var sórni lands þess, sem hann var fulltrúi fyrir. Virðing sú, sem hann naut og hið
ágæta starf hans í þágu þjóðar hans, veldur söknuði og harmi við fráfall hans.“
Að Thor látnum var stofnaður minningarsjóður hans hjá American-
Scandinavian Foundation: The Thor Thors Icelandic Fund of the American-
Scandinavian Foundation". Þessi sjóður var stofnaður til þess að heiðra minn-
ingu Thors og stuðla að því að efla ævihlutverk hans, sem að miklu leyti
var helgað góðri sambúð og auknum skilningi milli íslands og Bandaríkjanna.
The American-Scandinavian Foundation var stofnuð árið 1910 að til-
hlutan Niels Poulson, dansks manns, sem lengi hafði verið búsettur vestan
hafs. Arfleiddi hann stofnunina að eignum sínum. Tilgangur stofnunarinnar
var upphaflega að vinna að auknum menningartengslum milli Bandaríkjanna
og Norðurlandanna fjögurra (annarra en Finnlands)). Hefir það verið gert
á margvíslegan hátt, svo sem með fyrirlestmm, bókaútgáfu, námsstyrkjum og
fleiru. Fyrir allmörgum ámm var ákveðið að taka einnig Finnland með í starf-
semina, sem eitt Norðurlandanna. Stofnunin hefir vaxið mjög í áliti jafnframt
því, sem öll starfsemi hefir eflzt, og er óhætt að fullyrða, að hún hefir orðið
öllum menningartengslum milli Bandaríkjanna og Norðurlandanna hinn mesti
liðsstyrkur. Meðal bóka, sem gefnar hafa verið út um íslenzk efni, má nefna
þýðingar á fornsögum og Eddukvæðum, útgáfur á leikritum og öðrum nútíma-
bókmenntum.
Stofnunin gefur út mjög vandað tímarit, American-Scandinavian Review,
og kemur það út ársfjórðungslega. Þar eru oft greinar um íslenzka menn og
málefni, meðal annars yfirlit yfir helztu viðburði hér í hverju hefti, auk þýð-
inga á íslenzkum smásöguin o. 11. Hafa alls komið út 57 árgangar af ritinu.
I ár höfðu safnazt í þennan minningarsjóð um 50 þúsund dollarar. En
af tilefni 20 ára afmælis Marshall-aðstoðarinnar ákvað ríkisstjóm íslands að
gangast fyrir því, að ríkissjóður og þeir aðilar eða stofnanir, sem nutu sérstak-
lega góðs af Marshall-aðstoðinni, gæfu 50 þúsund dollara til viðbótar í minn-
ingarsjóð Thors Thors. Mun þessi sjóður því nú þegar kominn til nota til þess
að efla menningartengsl íslendinga og Bandaríkjanna, og með þeim hætti er
virðulega varðveitt minning fyrsta sendiherra íslands í Bandaríkjunum, —
minning um manninn Thor Thors.
10