Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1967, Page 102

Andvari - 01.10.1967, Page 102
204 STURLA FRIÐRIKSSON ANDVARI hluta og samdi frumvarp til lanclbúnaðar- laga, er gefið var út 1878 með athuga- semdum hans. Þar segir hann: „1 fyrnd- inni voru víst jarðir nefndar til hundraða eftir því, hvað mikinn pening mátti á þeim hafa, og eins var víst haft tillit til þess arðs, er þær gáfu af sér, og það virð- ist vera hið eðlilegasta að telja hverja jörð eins mörg hundruð, eins og hún gef- ur af sér mörg kýrfóður, og hin önnur hlunnindi mörg hundruð." Það er því auðsætt, að hann hefur álitið, að hug- myndirnar í Bergþórsstatútu væru réttar, en sama kom fram hjá öllum þorra al- þingismanna 1877. Þetta ár lagði stjórn- in fyrir þingið frumvarp til laga um end- urskoðun jarðabókarinnar frá 1861. — Nefndin í efri deild var öll samhuga um, að jarðir ætti að meta til hundraða eftir líkum reglum, sem eru í Bergþórsstatútu. í neðri deild voru menn einnig á sömu skoðun, en auk þess fundu menn upp á því að miða jarðarmatið eigi aðeins við fénaðarfjölda sem „hinn vissasta mæli- kvarða“ heldur við mannfjölda, og átti mannfjöldinn að sýna hlunnindin. Menn hafa auðsjáanlega hugsað sem svo: Ur því að miðað er við skepnur, sem lifa á grösum jarðarinnar, þá á líka að miða við mennina, sem lifa á rófurn og jarðeplum, sem líka vaxa á jörðinni, og öðrum hlunn- inudum jarðarinnar. Það er auðsætt, að hugmyndum Berg- þórsstatútu er fylgt út í æsar, og þeim, sem vilja telja mennina eins og skepn- urnar, mun víst falla þetta vel í geð. En hvað svo sem er um þetta, þá er það víst, að það er alveg ómögulegt, að slíkar hug- myndir geti komið upp, þar sem menn lifa á iðnaði, verzlun og öðrurn líkum at- vinnuvegum." Slík er umsögn Páls Briem, en einmitt vegna þess, að íslendingar eru og voru fyrst og fremst fæðuframleiðendur en ekki iðnaðar- eða verzlunarþjóð og fluttu vart nokkra matvöru inn í landið, virðist mjög eðlilegt, að jarðarmat hafi verið miðað við framleiðsluhæfni jarðarinnar. En framleiðsluhæfni kemur að nokkru fram, þegar borin er saman hundraðatala, búfénaður og fólksfjöldi landsins fyrr á öldum. í jarðatali á Islandi eftir J. Johnsen (1847) yfir dýrleika jarða og manntal, telur hann jarðamat yfir allt landið vera 85.443 hundruð, en þá var fólksfjöldinn 57.797 íbúar. Þannig var þá um hálft annað hundrað (1.47) jarðar fyrir hvern íbúa í landinu. Þegar hins vegar er at- hugað hlutfallið milli dýrleika jarða og fólksfjölda í einstökum sýslum, kemur í Ijós, að á Vestur- og Norðausturlandi stendur um eitt hundrað í jörðum að baki hverjum íbúa. Þessu er öðru vísi farið annars staðar á landinu. í Árnes- sýslu, Mýra- og Dalasýslu, Elúnavatns- sýslu, Skagafirði og Eyjafirði stóðu þá til dæmis um tvö hundruð í jörðum að baki hverjum einstaklingi. Þetta ósam- ræmi í jarðardýrleika miðað við íbúafjölda einstakra byggðarlaga er að ýmsu leyti athyglisvert, og liggja ef til vill til þess margar orsakir. Ekki er ósennilegt, að samræmi hafi verið í hinu upphaflega hundraðamati jarða hvar á landinu, sem var, en erfitt er að átta sig á hvort íbúafjöldi einstakrn byggðarlaga hafi þá verið í samræmi við hundraðatölu jarða. Hafi upphaflega verið sama mat á gras- nytjum hvar á landinu, sem var, og gras- nyt þá verið fullnýtt, hlýtur annað hvort að hafa orðið breyting á nýtingu eða mati þeirra jarða, sem Johnsen vinnur skýrslu sína úr. Vafalaust hafa hlunnindi önnur en grasnytjar veruleg áhrif á beint sam- ræmi milli fólksfjölda og hundraðatölu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.