Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 52

Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 52
50 VÉSTEINN ÓLASON ANDVARI þótt vera megi að konungur og Kveldúlfur sjái það rétt að stolt Pórólfs sé meira en góðu hófi gegnir í konungsþjónustu, er greinilegt að konungur sýnir ofsa og rangindi þegar hann rænir Þórólf eignum og sviptir hann hlunn- indum, og eftir það á Þórólfur einskis annars úrkosti en berjast gegn konungi eða hverfa úr landi. Síðari kostinn taka frændur hans eftir að konungur hefur drepið hann og þeir hafa komið fram nokkrum hefndum. Samkvæmt Egils sögu er því mótsögn milli sæmdar hins frjálsa höfðingja og konungsþjónustu sem ekki verður vart við í þáttum. Sagan greinir svo frá íslenskum landnáms- mönnum sem afstaða þeirra til konungsvaldsins hafi verið miklum mun óbil- gjarnari en hjá þeim afkomendum þeirra sem seinna leituðu á konungsfund til að afla sér sæmdar, og það er greinilega leitt í ljós hvaða hættur felast í konungsþjónustu. Eftir að komið hefur til fullrar óvináttu milli ættar Kveldúlfs og Haralds hárfagra flýja þeir feðgar Kveldúlfur og Skallagrímur til íslands og nema þar land, og mætti búast við að deilunni væri þar með lokið, því að í Eglu eins og mörgum öðrum fornsögum er litið á ísland sem griðastað utan við valdsvið konunga þar sem bændur geti haldið fornum rétti, frelsi og sæmd. Þetta sjón- armið hefur greinilega verið þáttur í sjálfsmynd hins íslenska samfélags á 13. öld, hversu gamalt sem það kann að vera. Eftir það sem á undan var gengið mætti ætla að afkomendur Kveldúlfs hefðu forðast að koma til Noregs eða eiga nokkur samskipti við valdamenn þar. En það fer á annan veg. Eitthvað teygir syni Skallagríms, fyrst Þórólf og síðan Egil, til að leita frægðar og frama utan lands, og hirðir konunga draga þá til sín eins og segull járn. Yngri Þórólfur kemst í vinfengi við konungsefn- ið og síðar konunginn Eirík blóðöx og konu hans Gunnhildi, en Egill er ekki fyrr kominn í nánd við þau en átök hefjast. Ekki er ástæða til að rekja hér hvernig átökin magnast eftir að Egill hefur tilkall til landeigna í Noregi fyrir hönd konu sinnar, en hámarki ná þau í 56. til 57. kap. þar sem Egill sækir mál sín á Gulaþingi gegn vinum konungs og í návist hans. Augljóst er að hvorki Egill né höfundur sögu hans telja konung hafinn yfir lögin; þvert á móti ætti hann að vernda þau. Samt sem áður blanda menn konungs sér í málin þegar Egill sýnist vera í þann veginn að vinna. Þeir hleypa upp dómi og sækjast eftir lífi Egils, sem kemst undan á flótta. Kon- ungur virðist í fyrstu ætla að gæta hluleysis en það er drottning sem tekur frumkvæði að lögleysu, og viðbrögð Egils eru svo ofsafengin að konungur bregst hinn reiðasti við. Þótt Egill sé friðsamur og óáleitinn heima á Borg fylgir hann eftir kröfum, sem hann telur réttmætar, af fullkomnu tillitsleysi til aðstæðna og manna munar, og konungur getur ekki þoiað slíkt, enda óvild milli þeirra frá fyrri tíð. Höfundur Egils sögu lætur ekki lesanda sinn vera í vafa um að lögin og helgað þing hafi talist heilög, og það er á grunni þeirrar trúar sem Egill bygg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.