Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 69
ANDVARI
Á ALDARÁRTÍÐ KONRÁÐS OlSLASONAR
67
varð hann þess vísari að ísleifur á Brekku, faðir Gísla, hugðist styrkja hann
til siglingar og frekara náms og Hallgrímur Scheving hefði sama í hyggju.
Það mun hafa verið ein ástæðan til að hann varð vetri lengur í Bessastaða-
skóla en nauðsyn krafði. Lokaprófið var haldið 24.-27. maí 1831. Það gekk
með sama glæsibrag og löngum áður. Konráð varð efstur og var með ágætis-
einkunn og fyrstu einkunn í öllum greinum nema tveimur.
Líf skólasveina á Bessastöðum var hart og þægindasnautt. Þeir iðkuðu
mikið sund og glímur, en sá bókakostur sem þeir höfðu helst undir höndum
voru íslensk fornrit og latneskir og grískir höfundar. Páll Melsteð sagnfræð-
ingur segir að sálin hafi orðið forneskjuleg og hálfklassísk, enda lítið hugsað
um annað en hetjuöld Grikkja og Róntverja og fornöld Norðurlanda.8
Það segir fátt af Konráði meðan hann var í Bessastaðaskóla. Páll Melsteð
segir að hann hafi oft verið þögull og fáskiptinn, en þegar því var að skipta
gat hann verið gamansamur.9 Hann þótti bráðlyndur og fékk þann vitnis-
burð hjá Jóni lektor Jónssyni að hann væri fauti.10 Það breyttist ekki á langri
ævi. Páll Melsteð segir að heldur kalt hafi verið milli hans og Jónasar Hall-
grímssonar og Konráð staðfesti það í bréfi til föður síns þar sem hann segir:
„Við hann hefi eg mestar brösur átt í skóla“.11 Svipuðu máli gegndi um sam-
band hans við Tómas Sæmundsson á þessum árum að því er ráða má.,2 Hins
vegar eignaðist hann tryggðavini sem ræktu vináttu við hann ævilangt. Má
þar nefna séra Stefán Þorvaldsson og Magnús Eiríksson og góð vinátta var
með honum og sessunaut hans úr neðra bekk, Gísla ísleifssyni, en hún virð-
ist hafa gufað upp á háskólaárunum.
II
Kynni Konráðs við Gísla og fjölskylduna á Brekku á Álftanesi leiddu til þess
að ísleifur styrkti hann til utanferðar og háskólanáms í Kaupmannahöfn. Að
auki bauð ísleifur Konráði að dveljast á Brekku eftir að stúdentsprófi lauk
þar til hann sigldi. Síðasta varðveitta bréf Konráðs áður en hann sigldi er
dagsett þar. Brynjólfur Benediktsen segir hins vegar í stúdentatali sínu að
hann hafi verið í Viðey að segja tveimur piltum til og Magnús Stephensen og
ísleifur gefið honum nokkurt fé til siglingar.13 í fátæktarvottorði „Fattig-
heds-Attest“ sem Jón lektor Jónsson gaf út og Konráð hafði með sér til
Kaupmannahafnar er talað um „1 Par ædelmodige Velyndere" sem hafi veitt
honum styrk til að hefja háskólanám og ljúka undirbúningsprófum, en að
þeim loknum sé einskis styrks að vænta.14
Ekki er vitað hvenær Konráð lét í haf, en hann tók sér fari með skipi
Bjarna Sívertsens - „de jonge Goose“. „Ferðin var slysalaus og varaði ekki