Andvari - 01.01.1991, Page 80
78
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON
ANDVARI
Kálund og Guðmundur Þorláksson sömdu nafnaskrár. Dr. Einar Ólafur
Sveinsson lýsir textameðferð Konráðs svo: „. . . hann er grundvallaður á R
(Reykjabók) með samanburði skinnhandritanna, og er orðamunur neðan-
máls, gerður af frábærri vandvirkni; í textanum hverfur K. G. frá R, hvenær
sem honum þykir annað betur fara“.43 Meðal fræðimanna síðari tíma hefir
þessi vinnuaðferð sætt gagnrýni. Njáluútgáfa Konráðs var sama marki
brennd og fyrsta útgáfa hans á Hrafnkels sögu hálfri öld áður, þar sem hann
lagði hvorki eitt handrit til grundvallar né valdi þann texta sem handrita-
rannsókn benti til að væri upprunalegastur, heldur var textinn fenginn úr
ýmsum áttum eftir geðþótta.
VI
í bréfi sem Konráð skrifaði föður sínum 14. mars 1830 talar hann um að hann
sé hneigðastur til að læra nýju málin og til málfræðinnar yfir höfuð.44 Hinn
15. nóvember vék hann aftur að málfræðiáhuga sínum í bréfi til föður síns og
segir þá: „Eg finn mig sjálfur, enn sem komið er, einna helst lagaðan fyrir
málfræðina, og eftir því ætti eg (ef g. 1.) utanlands að taka examen
philosophicum magnum o: það stóra heimspekilega examen“.45
Þegar Konráð kom til Hafnarháskóla opnuðust nýjar leiðir til að sinna
þessu hugðarefni. Áður er getið að hannsótti tímahjá Rask og lagði sigmjög
eftir þýskri tungu. Af vitnisburði sem J. N. Madvig prófessor gaf honum, og
fylgdi umsókn Konráðs um kennaraembætti við Lærða skólann 6. desember
1843, er ljóst að Konráð hefir þá þegar notið mikils álits sem efni í vísinda-
mann.46 Eftir að hann hætti námi í lögfræði virðist hann hafa hugleitt frekara
nám í öðrum greinum. Öðru vísi er tæpast hægt að skilja orð hans í bréfi til
ísleifs Einarssonar 17. mars 1836: „. . . samt sem áður ætla eg, með guðs
hjálp, á hálfu öðru ári frá vorinu, sem nú fer í hönd, að hafa náð því tak-
marki, sem eg hef nú fyrir augum, og álít mér ómissandi, til að geta komið
einhvurju til leiðar við landa mína. Þeir heimta „Autoritet“, svo skynsamir
sem þeir annars eru“.47
í næsta bréfi til ísleifs, 11. maí 1836, er eins og allur vindur sé úr seglum
enda þótt af því megi ráða að ísleifur og Scheving hafi ekki sleppt af honuin
hendinni með öllu. Þar segir Konráð: „Eg sé, það er ykkar beggja ráð, að eg
taki „philologicum“; en það er eins fyrir mér og þeim sem staddur er á eyði-
mörku, að hann leitar þangað, sem skemmst er til mannabygða, einkanlega
ef hann skortir föng til að fara annan og lengra veg“.48 Þessi orð virðast
benda til að hann hafi heykst á að hefja háskólanám að nýju í málfræði.
Ekki er vitað hvenær sú hugmynd fæddist hjá Konráði Gíslasyni að semja