Andvari - 01.01.1939, Page 17
Andvari
Tryggvi Þórhallsson
13
vorkvöld eitt suður á Melum, við tilhlýðilegan yfirsöng.
En slíkt þótti þá firn mikil, og þrátt fyrir þessi nýstár-
legu og gagngerðu mótmæli urðu skólamenn landsins
enn um rúmra 30 ára skeið að sveitast undir latnesk-
stíl, áður en tækist að láta hann rýma fyrir öðru, er
betur hæfði nýrri öld og viðfangsefnum hennar. En leng-
ur verður Þórhalls Bjarnarsonar minnzt sem andlegs
leiðtoga kennimanna þjóðarinnar um langt árabil. Um
bau 32 ár, sem hann var forstöðumaður prestaskólans
°2 biskup landsins, verður afarmikil breyting í trúarefn-
um hér á landi, sem kunnugt er, vafalaust að miklu
Jeyti fyrir erlend áhrif. En hitt, hversu þessi mikla breyt-
,n9 gerist, án illvígrar sundrungar og rifrildis um svo
viðkvæm efni, ber fagran vott um andlegan höfðings-
skap og óvenjulegt mannvit Þórhalls biskups, er í senn
var geðríkur og mildur, kappsamur og forsjáll. En um-
fram allt frjálshuga og bjartsýnn á sigur hins betra máls.
Hér mátti ekki hætta til aukinnar sundrungar með hvat-
v,slegri sókn. Hann vildi heldur vita kirkju sína losna
smám saman undan fargi bókstafstrúar og kreddufestu,
en hætta á það, að hún klofnaði í andstæðar fylkingar,
°9 honum tókst þetta, með sína rúmgóðu þjóðkirkju.
Eyrir bragðið þótti sumum, að nokkuð skorti á 6kör-
Un9sskap í fari hans. En svo var reyndar ekki. Um það
ber Nýtt kirkjublað beztan vott. Þar var aldrei myrku
máli talað, hvort sem ræða var um ásteitingarsteininn
mesta, útskúfur.arkenninguna, eða almenn þjóðmenning-
nrmál, svo sem kvenfrelsi, alþýðumenntun eða atvinnu-
a9i> er síður skipti flokkum.
Þórhallur Bjarnarson fæddist 1855. Vfir barnæsku hans
9en9u harðærin nyrðra 1859—1865. Og fullorðinn þoldi
ann örðugasta árferðiskafla 19. aldarinnar, ísaveturna
“2—1887. Þessi áfelli, sem svo fast surfu að ýmsum