Andvari - 01.01.1939, Blaðsíða 112
108
Einokunarfélögin 1733 — 1758
Andvari
vænfa máfti, að Málmeyingar féllu í ónáð hjá konungi
fyrir mök sín við Þjóðverja. Hann tók af þeim fjórar hafnir,
þegar ný einokunarleyfi voru gefin út, 1614, og þegar
fyrsta allsherjar einokunarfélagið var stofnað, 1620, mátti
þátttöku þeirra í íslenzku verzluninni heita lokið.1)
Arið 1620 var stofnað í Kaupmannahöfn félag til að
reka einokunarverzlun á fslandi, í Færeyjum og norður-
Noregi. Nær allir stofnendur félagsins voru borgarar í
Kaupmannahöfn, enda tókst Kaupmannahafnarbúum innan
skamms að ná undir sig allri verzlun hingað til lands.
Félag þetta var oftast kennt við ísland, þó að það stæði
víðar fótum undir, enda var íslenzka verzlunin arðsöm-
ust og gaf félaginu oft mikinn ágóða. En það varð fyr-
ir þungum búsifjum af styrjöldum, sem Danir áttu í við
Svía. Voru skip kaupmanna stundum tekin í hafi með
öllum farmi, og það er líka satt að segja, að á ófriðar-
tímum lagði konungur þungar kvaðir á einokunarkaup-
menn og heimtaði af þeim mikil framlög til hers og
flota. Af þessum ástæðum og ýmsum öðrum, sem félag-
inu voru ekki til sóma, var því slitið snemma á árinu
1662.
Félagsverzlunin þótti ekki hafa gefizt sem bezt, og
leið langur tími þangað til íslenzka verzlunin var aftur
leigð öll í einu lagi. Fyrstu 20 árin eftir að verzlunar-
félagið lagðist niður (1662—1683), var höfð tilhögun,
sem var eins konar millistig milli félags verzlunar og
einstakra kaupmanna. Það var verzlun hinna svonefndu
aðalútgerðarmanna, sem var þannig háttað, að landinu
var skipt í fjórðunga, er allir skyldu vera jafngóðir, og
einn útgerðarmaður talinn fyrir hverjum, en þeir höfðu
1) Sbr. Leif Ljungberg: Malmö och den danska Monopolhan-
deln pá Island 1601—1619. Malmö Fornminnesförenings Ársskrift
1936.