Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 15

Andvari - 01.01.1946, Side 15
andvahi Sigurður Eggerz 1 l liafði raunar aldrei verið. Hún myndaðist fyrst, þegar stjórnarskrárfrumvarp dr. Valtýs Guðmundssonar kom fram á Alþingi 1897. En vart er að efa, eftir því sem síðar lcom fram uni áhuga Sigurðar á þeim málum og óhvikula afstöðu hans þar, að stjórnmálaskoðanir hans hafi þegar mótazt á vngri árum, þó að hann hefði ekki enn fundið sinn vitjunar- tima uin að gerast þar virkur bardagamaður. Næstu árin eftir að Sigurður kom heim, að loknu emhættis- prófi, var hann settur sýslumaður á ýmsum slöðum: í Barða- strandarsýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu og Rangárvalla- sýslu. En á milli var hann málaflutningsmaður við lands- yfirdóminn í Reykjavík og aðstoðarmaður i stjórnarráðinu. Arið 1908, 9. apríl, var hann skipaður sýslumaður í Skafta- ftdlssýslu og settist að í Vík í Mýrdal. Fyrsta árið, sem Sigurður var í Skaftafellssýslu, fóru fram alþingiskosningar. Kosið var um sambandslagafrumvarpið Jyrra, og var baráttan mjög hörð. Andstæðingar frumvarps- “is, Sjálfstæðismenn, unnu mikinn sigur í kosningunum. Á næsta þingi, 1909, samþykktu Sjálfstæðismenn vantraust á Hannes Hafstein, og Björn Jónsson varð ráðherra. En tveimur arum síðar var Björn felldur með vantrausti frá allmörgum ^yrri flokksmönnum sínum, sem að sjálfsögðu var stutt af andstöðuflokknum, Heimastjórnarmönnum. Alþingi var rofið betta ár, og kosningar fóru franv haustið 1911. Sjálfstæðis- •loklturinn gekk klofinn til kosninga og beið mikinn ósigur. Við þessar kosningar, 1911, bauð Sigurður sig fram í ^estur-SkaftafellssýsIu, utan flokka. Hlaut liann kosningu uieð miklum meiri hluta atkvæða. A aukaþinginu 1912, sem var fyrsta þing Sigurðar, var stofnaður nýr floltkur, er nefndist Sambandsflokltur, risinn UPP af samtökum þingflokkanna um að taka sambandsmálið UPP að nýju. Hannes Hafstein varð ráðlierra í annað sinn ög hafði nú á balt við sig fylgi mikils meiri hluta þingsins. Sigurður stóð utan þessara samtalta, eins og nokkrir fleiri l'eirra þingmanna, sem fýlgt höfðu SjálfstætSisflokknum. IJótti þeim, sem um ol' mundi verða slakað á sjálfsta'.ðiskröf-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.