Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 16

Andvari - 01.01.1946, Side 16
12 Jón Guðnason ANDVARI anum. Varð og lítið um framkvæmdir í sjálfstæðismálinu að sinni, en Sambandsflokkurinn tvistraðist fljótt og varð skammlífur. Á Alþingi 1913 var samþykkt breyting á stjórnarskránni, og fóru kosningar fram i apríl 1914. Sigurður Eggerz varð sjálfkjörinn í Vestur-Skaftafellssýslu, og Sjálfstæðismenn unnu yfirleitt mikið á í kosningunum. Alþingi kom saman 1. júlí, og 5. s. m. var Sigurður Eggerz kjörinn ráðherraefni af Sjálfstæðismönnum. Sigldi hann á konungsfund, að beiðni konungs, og 21. júlí var hann skipaður ráðherra íslands. Á aukaþinginu 1914 var stjórnarskrárfrumvarpið frá fyrra ári samþykkt til fullnustu. Auk ýmsra merkra nýmæla, sem það hafði að geyma, var þar mælt svo fyrir, að fellt skyldi úr sljórnarskránni hið svo nefnda ríkisráðsákvæði, sem lengi hafði verið ýmsum sár þyrnir í augum og varð orsök að stofnun Landvarnarflokksins 1902—03. Umræður höfðu farið fram um þetta atriði stjórnarskrárbreytingarinnar á rikis- ráðsfundi 20. okt. 1913, og forsætisráðherra Dana tekið þátt í þeim. Konungur hafði sama dag gefið út opið bréf, þar sem boðaður var úrskurður um að málin skyldu eins og áður borin upp í ríkisráðinu, enda var honum í stjórnarskrárl'rumvarpinu falið að ákveða, hvar það skyldi gert. Þetta opna bréf var birt bæði á íslandi og í Danmörku. Ot af þessu samþykkti Alþingi 1914 þingsályktun, er nefnd var „fyrirvarinn“, og lét. hana fylgja stjórnarskrárbreytingunni til konungs. Var þar lögð áherzla á það, að uppburður sérmála íslands fyrir konungi í ríkisráði Dana og úrskurður konungs um það væri islenzkt sérmál. Sigurður Eggerz bar stjórnarskrána fram til staðfestingar á ríkisráðsfuridi 30. nóv. 1914 og tók fyrirvarann upp í til- lögu sína um staðfestinguna. Eftir nokkrar umræður tók ráðherra aftur staðfestingarlillögu sína og baðst lausnar frá embætti sínu, þar eð hann taldi, að skilyrði konungs fyrir staðfestingunni færu í bága við ályktun Alþingis. Einkum þótti honum það vera ósamrýinanlegt við skoðun Alþingis, ef birt yrði i Danmörku auglýsing um málið, „með þvf að

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.