Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 18
14
Jón Guðnason
ANOVARI
Heimsslyrjöldin fyrri skall á sumarið 1914, rétt um þær
mundir, sem Sigurður tók við ráðherraembætti sínu. Styrj-
öldin hafði mörg vandamál í för með sér, eins og vænta mátti,
og leiddu þau til þess, að í ársbyrjun 1917 var mynduð sam-
steypustjórn þriggja flokka, þar sem Jón Magnússon var
forsætisráðherra. Björn Kristjánsson var fyrst í stað fjár-
málaráðherra í þeirri stjórn, en sagði af sér eftir nokkra
mánuði. Var þá Sigurður Eggerz skipaður fjármálaráðherra,
28. ágúst 1917.
Engin tök eru á að rekja hér þau mál, sem þessi stjórn,
eða fjármálaráðherrann sérstaklega, hafði að sinna á þess-
um umrótstímum. Verður aðeins getið þess málsins, sem
stærst má telja, en það er sjálfstæðismálið. Lausn þess bar
nú brátt að, og kom þar margt til, svo sem vaxandi aiþjóða-
skilningur á rétti smáþjóða, enn fremur sú staðreynd, að við
höfðum í mörgu orðið að koma fram sem fullvalda aðili
á stríðsárunum, viturleg forusta í sjálfstæðismálinu liér
heima fyrir og, síðast en ekki sízt, vaxandi einhugur þjóðar-
innar í því máli. — Ný samhandslaganefnd var skipuð,
l'jórir menn af hvorri þjóð. Nefndin kom saman í Reykjavík
i júnílok 1918, og samningum var lokið 17. júlí. Sambands-
lögin voru síðan samþykkt fyrir haustið, bæði af Alþingi og
af ríkisþingi Dana. Um haustið, 19. ok^iber, voru lögin boriri
undir þjóðaratkvæði hér og samþykkt með yfirgnæfandi meiri
hluta atkvæða. Þannig hrukku margra alda fjötrar al' landi
voru, eins og hrunninn þráður.
Sambandslögin gengu í gildi 1. desember 1918, en sá dagur
hefur siðan verið haldinn liátíðlegur sem fullveldisdagur vor,
eins og kunnugt er. Það féll í hlut Sigurðar Eggerz að koma
fram fyrir stjórnarinnar hönd þann dag, því að Jón Magnús-
son var þá staddur erlendis. Flutti Sigurður ræðu af tröpp-
um stjórnarráðshússins, og var mikill fjöldi manna þar
saman kominn, þó að spönslcu veikinni, sem gengið liafði i
nóvember, væri þá tæplega aflétt. Meðal viðstaddra voru full-
trúar erlendra rikja. Ræða Sigurðar við þetta einstæða tæki-
færi sýnir glöggt, með hvaða liuga liann og þjóðin yfirleiU