Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1946, Page 19

Andvari - 01.01.1946, Page 19
andvahi Sigurður Eggerz 15 fagnaði fullveldinu. Þykir því rétt að tilfæra hér kafla úr henni. Sigurður mælti m. a. á þessa leið: „íslendingar! Hans hátign konungurinn staðfesti sam- handslögin í gær, og í dag ganga þau í gildi. Þessi dagur er mikill í sögu þjóðar vorrar. Hann er runninn af baráttu, sem háð hefur verið í þessu landi allt að því í heila öld. Baráttan hefur þroskað okkur um leið og hún hefur fært okkur að markinu. Saga hennar verður ekki sögð í dag. Hún lifir í hjörtum þjóðarinnar. Þar lifir einnig minning þeirra, sem nieð mestri trúmennsku hafa vakað yfir málum vorum. Einu nafni hefur sagan lyft hátt yfir öll önnur, á sínum breiðu vængjum, nafni Jóns Sigurðssonar. I dag eru tímamót. í dag byrjar ný saga, saga hins viðurkennda íslenzka ríkis. Fyrstu drættina í þeirri sögu skapar sú ltynslóð, sem nú lifir. Það eru ekki aðeins stjórnmálamennirnir, sem skapa hina nýju sögu. Það eru allir. Bóndinn, sem ræktar jörð sína, daglauna- maðurinn, sem veltir steinum úr götunni, og sjómaðurinn, sem situr við árarkeipinn. Allir, sem inna lifsstarf sitt af hendi með alúð og samvizkusemi, auka veg hins islenzka rikis. Og í gær hefur konungurinn gefið út úrskurð um þjóð- fána íslands. Hlýr hugur hinnar íslenzku þjóðar andar móti konungi vorum. Fáninn er tákn fullveldis vors. Hann er imynd þeirra hugsjóna, sem þjóð vor á fegurstar. Vér biðj- um alföður að styrkja'oss til þess að lyfta honum til frægð- ar og frama. Gifta lands vors og konungs vors fylgi fána vorum.“ Fullveldisdagurinn 1918 hefur án efa verið einn hinn mesti gleðidagur í lífi Sigurðar Eggerz. Þó, voru honum, eins og mörgum öðrum, Ijósir gallar sambandslaganna. „Sambands- lagasáttmálinn 1918 var einungis samþykktur af Sigurði Eggerz og öðrum vegna uppsagnarákvæðanna og í fullu trausti þess, að þeim yrði þá heitt orðskviðalaust, þegar til kæmi.“ (B. Sv. í Mbl., 1. marz 1945). Snemma árs 1920 myndaði Jón Magnússon nýtt ráðuneyti, Qg var Sigurður Eggerz þá ekki í stjórn næstu tvö ár. Tók hann nú ekkert embætti, en var framkvæmdarstjóri Smjör-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.