Andvari - 01.01.1946, Qupperneq 19
andvahi
Sigurður Eggerz
15
fagnaði fullveldinu. Þykir því rétt að tilfæra hér kafla úr
henni. Sigurður mælti m. a. á þessa leið:
„íslendingar! Hans hátign konungurinn staðfesti sam-
handslögin í gær, og í dag ganga þau í gildi. Þessi dagur er
mikill í sögu þjóðar vorrar. Hann er runninn af baráttu, sem
háð hefur verið í þessu landi allt að því í heila öld. Baráttan
hefur þroskað okkur um leið og hún hefur fært okkur að
markinu. Saga hennar verður ekki sögð í dag. Hún lifir í
hjörtum þjóðarinnar. Þar lifir einnig minning þeirra, sem
nieð mestri trúmennsku hafa vakað yfir málum vorum. Einu
nafni hefur sagan lyft hátt yfir öll önnur, á sínum breiðu
vængjum, nafni Jóns Sigurðssonar. I dag eru tímamót. í dag
byrjar ný saga, saga hins viðurkennda íslenzka ríkis. Fyrstu
drættina í þeirri sögu skapar sú ltynslóð, sem nú lifir. Það
eru ekki aðeins stjórnmálamennirnir, sem skapa hina nýju
sögu. Það eru allir. Bóndinn, sem ræktar jörð sína, daglauna-
maðurinn, sem veltir steinum úr götunni, og sjómaðurinn,
sem situr við árarkeipinn. Allir, sem inna lifsstarf sitt af
hendi með alúð og samvizkusemi, auka veg hins islenzka
rikis. Og í gær hefur konungurinn gefið út úrskurð um þjóð-
fána íslands. Hlýr hugur hinnar íslenzku þjóðar andar móti
konungi vorum. Fáninn er tákn fullveldis vors. Hann er
imynd þeirra hugsjóna, sem þjóð vor á fegurstar. Vér biðj-
um alföður að styrkja'oss til þess að lyfta honum til frægð-
ar og frama. Gifta lands vors og konungs vors fylgi fána
vorum.“
Fullveldisdagurinn 1918 hefur án efa verið einn hinn mesti
gleðidagur í lífi Sigurðar Eggerz. Þó, voru honum, eins og
mörgum öðrum, Ijósir gallar sambandslaganna. „Sambands-
lagasáttmálinn 1918 var einungis samþykktur af Sigurði
Eggerz og öðrum vegna uppsagnarákvæðanna og í fullu
trausti þess, að þeim yrði þá heitt orðskviðalaust, þegar til
kæmi.“ (B. Sv. í Mbl., 1. marz 1945).
Snemma árs 1920 myndaði Jón Magnússon nýtt ráðuneyti,
Qg var Sigurður Eggerz þá ekki í stjórn næstu tvö ár. Tók
hann nú ekkert embætti, en var framkvæmdarstjóri Smjör-