Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1946, Page 24

Andvari - 01.01.1946, Page 24
20 Jón Guðnason ANDVARI Vílc í Mýrdal. Nýtur það sín og vel með hinu fagra lagi, er Sigvaldi Kaldalóns samdi við það. Sigurður Eggerz var hár maður vexti, þrekinn við hóf, fríður sýnum og um allt hinn glæsilegasti á velli. Hann var jafnan glaður og reifur, ljúfur í viðmóti, allra manna kurt- eisastur, enda átti hann ávallt hinum mestu vinsældum að fagna, hvar sem hann fór. Ég leyfi mér að tilfæra hér um- mæli Páls Sæmundssonar, fulltrúa í Kaupmannahöfn, en þeir Páll og Sigurður voru bekkjarbræður, eins og fyrr er greint. Páll segir svo, í bréfi til mín, uin Sigurð: „Spurningum yðar um ytri atriði snerti ég ekki á. Ég get ekki i þessu augna- bliki rifið þorskhausa með Sigurð í huga mér. En nokkur orð um manninn. Hann skrökvaði aldrei. Hraut aldrei blóts- yrði. Talaði aldrei illa um nokkra manneskju. Var alitaf, hvernig sem ástæður hans voru, fullur af hjartans og andans fjöri. Hann þurfti ekki á víni að halda. Sá hann aldrei bragða á því. Mér, skap- og orðstirðum, var hann sírennandi nær- ingarlind. Hans innsta eðli: gæði.“ — Þessi orð Páls Sæmunds- sonar munu vera sem töluð út úr huga allra þeirra, er þekktu Sigurð bezt. Sigurður var mikill ræðuskörungur, sem alkunnugt er. í umræðum um stjórnmál var hann, eins og í einkalífi sínu, frábitinn persónulegri áreitni í garð andstæðinga sinna. Bezt naut hann sin í ræðustól, er hann fann almennan sainhug álieyrenda. Þótt hann léti þá fyndni sína bitna á nndstæðingunum, var hún svo góðlátleg og græskulaus, að einnig þeir gátu haft gaman af. Ég minnist eins dæmis af því tagi úr kosningabaráttu í Dalasýslu haustið 1926, er rætt var uin seðlaútgáfu. Við lceppinautar hans höfðum ekki enn haft tækifæri lil að kynna okkur það mál til hlítar, en kváðumst, aðspurðir, hallast að því, að Landsbankinn annaðist seðlaút- gáfuna. Þessu svaraði Sigurður (næstum orðrétt) þannig: „Háttvirtir keppinautar mínir sögðust hallast. Þeir eru farnir að hallast strax. Ég bið fyrir þeim, ef þeir komast inn í þingiö.“ — Samkvæmisræður Sigurðar voru þrungnar af fjöri og lífsgleði, og með ljóðrænum blæ. Hann sagði mér sjálfur

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.