Andvari - 01.01.1946, Page 27
andvari
Tvö skáld.
Ferðaminning af Snæfellsnesi sumarið 1942.
Eftir Þorkcl Jóhannesson.
1. Á leið út í Breiðuvik.
Staðarsveitin endar við innanvert Búðahraun. Sjálft hraun-
ið skagar langt út í hafið, myndar breitt og mikið nes. Upp
úr j)ví miðju ris Búðaklettur, eldgígur, sem myndað hefur
hraunið fyrir örófi vetra, fagurlega bunguvaxinn og litskrúð-
ugur, er á skiptast alla vega rauðar og brúnar gjallskriðui og
mosateygjur margvíslega grænar eða ljósgráar, næstum hvít-
ar. Við hraunjaðarinn innanverðan rennur Hraunhafnara
til sjávar og myndar breiðan ós, l^ar sem hún mætir hafinu.
Hér nefndist til forna Hraunhöfn, gott skipalagi og kunnugt
af fornum l'rásögum. Síðar var.,hér kallað að Búðum og hefur
það nafn haldizt um mörg hundruð ára. Bærinn á Búðum
stendur í hraunjaðrinum við ósinn. Nú er liinn forni Hraun-
hafnarós, eða Búðaós, sjálfsagt nokkuð ólíkur því, sem
íyrrum var. Framhurður úr Hraunhafnará, sandfolc og sjávar-
rót hafa breytt hinni gömlu höfn. Bátar, sem þar fljóta inn
á flóði, Jiggja á þurru um fjöru.
Á slikum stað sem þessum er furðumargs að minnast og
fróðlegt um að litast, en að sinni er naumur tími til tafar.
Dagur er liðinn að kvöldi og ferðinni lieitið um Búðahraun
út í Breiðuvík, að Hamraendum. Sú leið er að vísu ekki löng,
en seinfarin og ekki auðröluð ókunnugum. Þeim, sem hafa
vill hraðann á, er ráðlegra að þræða alvveginn fyrir ofan Axlar-
úóla, fram með fjallinu, og hætta sér ekki á hraunið. Þarna,
milli lirauns og hlíða, eru rústirnar af býli Axlar-Bjarnar, sem
orðið hefur ódauðlegur í íslenzkum þjóðsögum vegna morð-
fýsnar sinnar og mannvonzku, og hryllilegs lifláts á Laugar-
brekkuþingi. Glæpamaðurinn fer oftast sínar eigin g'ötur og