Andvari - 01.01.1946, Síða 29
andvaiu
Tvö skáld
25
strandar viö Mývatn, eða sjálfu Aðaldalshrauni, mun líkast
lií ekki festa auga á mörgu í Búðahrauni, sem honum komi
alls kostar nýstárlega fyrir sjónir. Og þó: Óvíða, jafnvel
livergi, getur að líta andstæðurnar í náttúru iandsins og eðli
jafn-glöggt og hér: Annars vegar hið dulda lif hraunsins og
margbreylilegá, smáfellda fegurð, sem leynir sér, skýlir sér
hak við klett eða brunahrygg, en brosir svo við manni í
næsta fótmáli eins og glettið, kátt barn i feluleik. Hins vegar
nbúðarmikill, himingnæfandi fjallgarðurinn með gnípum sín-
UnV. gljúfrum og hamraveggjum, sem endar í hvítum tind-
11 rn jökulsins. í þessum tröllslegu, sterku og þó inargvíslega
brotnu dráttum fjallanna er'öllu öðru fremur reisn og kald-
Ur kraftur, sem fcr ekki í felur með neitt, dylst ekki en
býður öllu byrginn í ögrandi ró. En í hlyjum skuggum kvölds-
ms mýlcjast hinir skörpu drættir í ásýnd fjallanna, andstæð-
urnar i lögun og litum hinna gróðursnauðu, eldbrunnu og
.lokulsorfnu tinda og hlíða mást smám saman í djúpan bláma.
Hinar efstu, hvössu brúnir skera þó af við íroða loftsins í
norð-vestri, allt frá Helgrindum að jökulþúfunum tveimur.
^ ndisþokki og ægifegurð náttúrunnar tengjast í vitund veg-
farandans á þessu töfrandi júlíkvöldi. Hér er gott að vera og
lata hugann reika, meðan hestarnir stildra áfram liraun-
götuna. —
h'áir eiga nú orðið leið um Búðahraun. En á fyrri öldum
b* hér ein hin fjölfarnasta þjóðbraut landsins. Hér gengu
^kreiðarlestirnar miklu úr verstöðvunum undir Jökli um
hundruð ára inn í Hnappadalssýslu og á Mýrar og til Borgar-
Ijarðar, vestur í Dali, norður í Húnavatnssýslu, til Skaga-
Ijarðar, jafnvel norður um Öxnadalsheiði og Ljósavatns-
skarð. Þungstígir klárar þúsundum saman hafa troðið
'ljúpar götur í hraunklappirnar. En ekki voru þeir einir
a leið unx hraunið. Fleiri áttu hér spor en þeir, þung eða
‘étl, þótt þeirra sjáist lítil merki, kannske engin. Enda-
laus fylking vermanna átti hér sókn yfir hraunið, vetur, vor
°g haust. Gamlir, kampúfnir, hæruskotnir seggir, iniklir í
vassi og herðum og armleggjadigrir af þungum róðrum