Andvari - 01.01.1946, Page 32
28
Þorkell Jóhannesson
ANOVARI
Breiðuvikurhreppur hinn forni náði yfir aila byggð á
strandlengjunni frá Öndverðanesi og inn að Öxl. Sjálf Breiða-
víkin, byggðin með þvi nafni og innsti hluti hreppsins, mun
venjulegast hafa verið talin enda við ána Sleggjubeinu, kipp-
korn fyrir utan Hamraenda. Innri liluti þessa litla byggðar-
lags og meginhluti hans, utan frá Hamraendum og inn að
Axlarhólum, er undra fríður, minnir dálítið á Vatnsdalinn.
Sléttar grundir og engjaflákar liggja hér í aðkreppu hafs
og hrauns, inn með þverbröttu fjallinu, en að innan lykja
Axlarhólar um byggðina, þar sem þeir mæta hraunjaðrinum
gegnt Búðakletti. Yfir hólana gnæfir Axlarhyrna, hár og
fríður tindur, en í íjallsbrúninni, yfir endilangri sveitinni, er
nær óslitinn hamraveggur. Þar heitir á kafla Knarrarklettar,
kenndir við bæinn Knörr, höfuðból sveitarinnar að fornu, ill-
ræmdur aftökustaður ferðamanna, sem villzt hafa á leið yfir
Fróðárlieiði og lent þarna fram af hömrunum, í stað þess að
halda við veginn, sem liggur innan við Axlarhyrnu, niður
með Hraunhafnará, að Búðum
Breiðuvíkursveitin er fræg í fornum sögum. Að Kambi,
skammt innan við Hamraenda, bjó fyrrum Björn Ásbrands-
son Breiðvíkingakappi, skáldið, sem var meiri vinur hús-
freyjunnar á Fróðá en goðans á Helgafelli, bróður hennar.
Þá bjuggu frjálshuga atgervismenn í Breiðuvík og héldu hlut
sinum fyrir hverjum, er á þá leitaði. í Eyrbyggjasögu eru þeii'
nefndir Heiðsynningar, þ. e. þeir, sem búa sunnan við beið-
ina. Er það heiti öllu glæsilegra en Sunnanheiðarmenn, scm
nú er stundum baft um Breiðvíkinga og jafnvel líka Stað-
sveitinga. Síðar hnignaði högum manna í þessari byggö,
eins og víðar. Nágrennið við veiðistöðvarnar og einokunai'-
setrin á Stapa og Búðum reyndist bændunum viðsjált. Um
1600 bjó á Knerri Ormur Þorleifsson, auðmaður mikill, sem
sagnir herma, að átt hafi alla Breiðuvík frá Kambi inn að
Hraunhafnará. Um hann var þetta kveðið:
Enginn er verri
en Ormur á Knerri.