Andvari - 01.01.1946, Qupperneq 35
ANDVARl
Tvö skáld
31
klettabákn mikið við loft, er stundum tekur á sig líkingu
krossins, en er þó raunar mynd af hamrinum Þórs og smíði
landvætta. Forðum daga, þegar jökullinn spjó eldi, hafa
hraunelfarnar klofnað á Stapafelli. Rann önnur xneginkvíslin
niður með fellinu að innan, niður undir brún á Sölvahamri
við sjóinn, innan við Stapa, og heitir þar Klifhraun, og má
kalla einstigi fyrir hrauntaglið, þar sem tæpast er á hamars-
brúninni. En hin hraunkvíslin ruddist niður með fellinu
utanverðu og allt í sjó fram milli Sta^ia og Hellna, geysilega
úfin og hrikaleg hraunröst. Byggðin á Stapa stendur í vari
af Stapafelli, litil, græn og falleg eyri i grásvartri hraunmóð-
unni.
Alla leið innan frá Hamraendum og út á Stapa er stand-
herg með sjónum fram. Göturnar liggja út með sjónum um
lágar melöldur, meira eða minna grónar hið næsta veginum,
en ofar fornt og fremur lágkúrulegt hraun, einnig talsvert
gróið, kennt við eyðibýlið Hnausa. Margar smáár og lækir
falla hér ofan úr l'jöllunum og um hraunið til sjávar. Þær
eiga víst flestar upptök sín í afrennsli úr sjálfum jöklinum,
þótt þess sjáist lítil merki. Vatnið hefur hreinsazt svo og síazt
a leið sinni um urðir og grjót, að jökulkorgsins gætir lítt
cða ekki. Þessar litlu, straumkviku ár falla fram af sjávar-
hömrunum í fallegum fossum, hver af annarri: Barnaá, Torfá,
Þrifyssa, Sleggjubeina. Sleggjubeina er þeirra mest. Hún
hefur grafið sér allmikinn farveg, ofurlítið daldrag, milli
Hnausahrauns að innan og Klifhrauns að utan. Hér fram-
undan við sjóinn heitir Látrasnoppa, klettarani, sein skagar
nokkuð fram og myndar var við vestansveljandanum, forn
verstöð, ofurlítið afdrep fyrir fáeina smábáta. Spölkorn upp
með ánni, í litlum hvammi, eru rústir af gömlu býli. Hér
heitir að Grimsstöðum, og var þetta fyrrum yzti bærinn í
Breiðuvík, lítil jörð, í eyði siðan um aldamót.
Ég legg lykkju á leið mína, upp að vallgrónum þústum
bæjarins og svipast um. Nöfnin Grímsstaðir og Sleggjubeina
hafa vakið hjá mér minningu frá barnsaldri, sem leiðir hug-
ann rakleitt heila öld aftur í tímann, til þeirra daga, er skáldið
3