Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1946, Page 39

Andvari - 01.01.1946, Page 39
ANDVARI Tvö skáld 35 þyrstir til daggar. Eyðistað þennan, sem nú stend ég á, hafa tvö skáld helgað. Annað með baráttu sinni, raunum og dýpstu lægingu í átökum við ómild forlög, hitt með litlu kvæði, sem i’áir hafa gaum gefið og allur þorri manna aldrei heyrt né séð. Mér hefur ætið virzt og virðist enn, að þetta látlausa kvæði sé magnað kynlegum krafti. Þrátt fyrir fremur fátæk- legan búnað sinn stendur það framar flestum minningar- kvæðum i einfaldri en sannri tjáning sinni á mannlegum örlögum, djúpum skilningi á harmsögu snillings, sem fæddur er til örbirgðar og útigangs og lífið neitar urn allt nema brennivín og skeytingarleysi hinna fátæku um þann fátæk- asta. — Svo er rofin hin mikla blekking tímans yt'ir vegfarandanum og þessum gleymda eyðistað. 1 rauninni er hér engu breytt. Áin niðar við túnfótinn, vefur sínum léttu, silfurtindrandi tónum um bæinn, eins í dag og fyrir hundrað árum. Sólin brosir sínu mildasta brosi yfir tognstafa útsæinn, yfir dal- verpið við ána á mörkum tveggja hraunelfa, er hrannast að fótum fjallanna og jökulsins. Á slikri stundu vekur það enga furðu, þótt lágar þekjur lyfti sér úr foinum, bældum tóttum. Ljósblár, léttur reykur stígur upp af eldhússtrompi í nónkyrrðinni. Niðri á eyrinni hvín 1 jár í þéttu, röku grasi, hrynjandi sláttulagsins kveður við ljúflega, líkt og úr fjarska: Ef þú hefur heiftarlund við heilög stráin, þegar dagsins birt er bráin berðu að þeim hvassa ljáinn. Og handan úr hraunlágunum, utan við ána, horfir lítill drengur hugfanginn og þó með fælni í sínum kviku augum, horl'ir og hlustar, eins og honum gefi heyrn og sýn utar tak- mörkum rúms og tíma, barn, sem guðirnir hafa gætt shyggni skáldsins á fegurð náttúrunnar, sem öðrum er dulin meira en til hálfs, dýpri sjón og æðri öðrum mannanna börn- um, og jafnframt skyggni á ógn og furðu mannlegs lífs, sem alltaf og alls staðar er stórt í neyð sinni, vanmætti og

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.