Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 42

Andvari - 01.01.1946, Side 42
38 Jónas Jónsson ANDVARl ingum er með forgöngu tveggja skálda mörkuð leið i skóg- ræktarmálunum. Ein kynslóð á að geta gert trjágarða við öll eða flestöll heimili á landinu. Þaðan má hefja sólcnina að fylla dalina með skógi. En til þess þarf margar aldir. II. Síðan Hannes Hafstein bar fram fram dagskrá sína um skógræktarmálin í byrjun yfirstandandi aldar, hefur mikið áunnizt. í höfuðstaðnum og mörgum öðrum kaupstöðum og kauptúnum eru nú blómlegir trjágarðar, einkum við hin ný- legri hús. Á Akureyri eru mjög álitlegir trjágarðar fyrir almenning. Sunnanvert við Akureyri stofnsetti Sigurður Sig- uiðsson frá Draflastöðum tvær slcógræktarstöðvar, og eru þær, hvor um sig, eitt hið myndarlegasta átak, sem gert hefur verið í þeim málum. Eftir að Sigurður Sigurðsson varð slcóla- stjóri á Hólum, græddi hann blómlegan birkiskóg norðanvert \dð túnið á Hólum. Er sú tilraun í alla staði hin merkileg- asta. Sigurður Sigurðsson hafði að kjörorði í skógræktar- málunum: „Náttúran plantar ekki í röðum.“ Svndi hann þetta i verki á Hólum, þvi að skógarbeltið er breitt og skjólgott í bezta lagi. í mörgum sveitum hafa verið gróðursettar trjá- plöntur í skjóli við bæjarhúsin, til mikillar prýði fyrir heim- ilin. En því miður eru hin heimilin langtum fleiri, þar sem húsin standa á berangri og ekki gerð minnsta tilraun til að láta svo mikið sem eitt einasta tré fegra heimilið. Það má þvi miður fullyrða, að langflest sveitaheimili og mjög mörg hús i kaupstöðum og kauptúnum eru ekki enn komin á það stig, að menning fólksins eigi þar sýnilega vörn i nýjum skógar- lundum. III. í öllum nálægum löndum eru flest heimili vafin skógi. Hvar sem farið er um Noreg, Danmörku og Svíþjóð, fylg.Ía skógartrén byggðinni. Slíkir trjálundir eru oftast eins konax' lieimilisvinir. Fólkið vill hafa tré við hús sín, bæði til skjóls og fegurðar. Foim trjáræktarmenning er í öllum þessum lönd- 4im. Fólkið lætur trjágróðurinn veita skjól og aukna lieimilis-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.