Andvari - 01.01.1946, Side 43
•ANDVAHI
„1 lundi nýrra skóga“
39
ánægju, en gætir þess, að trén byrgi ekki fagurt útsýni. Hér á
landi er auðnin átakanleg, þó að hún sé fögur með vissum
hætti. Meðan sveitafólkið bjó í grasklæddum torlbæjum, fóru
þeir einkar vel við landslagið. En síðan steinsteypuhúsin
komu til sögunnar, er berangur sveitaheimilanna mjög átak-
anlegur. Úr því verður ekki bætt, nema með trjálundum um-
hverfis bæina. Síðan verða garðfræðingar og húsameistarar
að leitast við að finna hin fegurstu form og hið fulllcomnasta
samræmi milli útlits sveitabæjanna og trjágarðanna við
heimilin. I kaupstöðum og kauptúnum eru nú þegar komnar
fastar fyrirmyndir um heimilisgarðana. En þar þarf trjá-
ræktun að aukast, þar til hvert heimili hefur sinn skógarlund.
IJá er aldamótadraumur Hannesar Hafsteins orðinn að veru-
leika. En næsta stigið er að klæða dalinn eða þau landssvæði,
sem eru betur komin undir skóglendi en til annarra afnota.
Þegar svo er komið, hefur listaskáldið góða líka fengið upp-
fylling sinna óska að þessu leyti.
IV.
Ástæðan til þess, að enn eru til heimili á íslandi, svo að
skiptir þúsundum, þar sem ekki er svo mikið sem ein birki-
hrísla við bæinn, ér bæði vöntun á trjápiöntum og þó ekki
síður hitt, að mikill hluti þjóðarinnar vantreystir því, að hægt
sé að koma við trjárækt kringum bæi, nema með óviðráðan-
legum kostnaði. Ég verð að játa, að ég var að vissu leyti í tölu
þessara manna, þangað til sérstök tilviljun sannfærði mig um,
að þetta var rangur hugsunarháttur. Vegna þessarar nýfengnu
i'eynslu kemur mér til hugar að freista að vekja áliuga og trú
nianna, sem lítið hafa sinnt trjárækt við heimilin, fyrir þvi, að
h'jálundir við sveitabýli séu æskileg framkvæmd fyrir þá, sem
þess njóta, og hvorki kostnaðarsöm né tæknilega erfið.
Fyrir sex árum fékk ég hjá skógrækt rílcisins nokkra tein-
l}nga af erlendum víði og dálitið af hirki- og reynihríslum.
Ég gróðu^etti þessar plöntur með ráði kunnáttumanna frá
skógræktinni kringum sumarhús, sem ég átli i útjaðri á gamla
túninu á Reykjum i Ölfusi. Ég girti blettinn með þéttu vír-