Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 46

Andvari - 01.01.1946, Side 46
42 Jónas Jónsson ANOVAHl árin, sem ég hafði víði á landamerkjum milli min og garð- yrkjuskólans, var lifsbarátta kvistanna mjög hörð. Á haustin náðu þroskamestu sprotarnir upp fyrir vírgirðinguna, en næsta vor höfðu vetrarfrostin klippt ofan af víðinum, svo að liann varð að byrja á nýjan leik að keppa við girðinguna. En á fimmta og sjötta sumri var sigurinn unninn, og í sumar kom í ljós, að víðitrén voru farin að skýla rönd af tún skólans inóti norðanátlinni, svo að sprettan var þar mun betri en ef skjólið hefði vantað. Eftir nokkur ár vona ég, að víðirinn verði orð- inn sex metra hár og hann lialdist síðan við í þeirri hæð uin mjög langt árabil. Þarf ekki að fjölyrða um það, hversu hinn erlendi víðir getur myndað þýðingarmikla skjólgarða fyrir við- kvæmari trjágróður í heimilislundum á bersvæði sveitanna. Reyniviðurinn er hið viðkvæma og duttlungafulla skrauttré íslendinga. Þar sem birkið er í þéttri línu milli tveggja raða af reynikvistum, líður ekki á löngu, áður en birkið sýnir móð- ureðli sitt. Það fær þroskamikinn stofn og þróttmiklar, blað- inargar greinar, sem breiðast út til allra hliða og mynda ör- uggan skjólgarð um hina grönnu og veigalitlu reynikvisti til beggja hliða. Á þennan hátt fær reyniviðurinn mjög góð vaxl- arskilyrði. Birkið hlífir honum, en hann nær til fulls í Ijós og sólaryl yzt í trjáröðunum. Ég hygg, að ef menn vilja mynda reynigöng meðfram heimreiðum að bæjum, verði öruggast að hafa tvær i-aðir af birkitrjám í miðju, en reyniviðinn á báð- um röndum. Síðan mætti taka liirkið burtu, ef þurfa þætti, en að öllum líkindum mun liilt þó þykja fallegra, að blanda birki og reyni saman, þar sem á að inynda trjágöng heini að sveitabæjum. Reyniviðnum er mjög nauðsynlegt að tiafa góðan jarðveg, heppilegan álnirð og skjól, en við þau skilyrði dafnar hann vel og er hið mesta augnayndi með fögru blaðskrauti og rauðum aldinklösum. Kunnáttumenn segja, að birkið þoli ekki mjög frjóa mold eða áburð. Mín reynsla er á annan veg. Eg beld, að birkið vaxi bezt í góðu gróðurlandi og dafni einkar vei við hóflega áburðarnotkun. En skjólið er lifsnauðsyn fyrir birkið. í sexfaldri röð bygg ég, að þær hríslur, sem bezta hafa aðstöðu, geti náð fullum þroska. f Svíþjóð lcggja skógræktar-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.