Andvari - 01.01.1946, Qupperneq 46
42
Jónas Jónsson
ANOVAHl
árin, sem ég hafði víði á landamerkjum milli min og garð-
yrkjuskólans, var lifsbarátta kvistanna mjög hörð. Á haustin
náðu þroskamestu sprotarnir upp fyrir vírgirðinguna, en
næsta vor höfðu vetrarfrostin klippt ofan af víðinum, svo að
liann varð að byrja á nýjan leik að keppa við girðinguna. En
á fimmta og sjötta sumri var sigurinn unninn, og í sumar kom
í ljós, að víðitrén voru farin að skýla rönd af tún skólans inóti
norðanátlinni, svo að sprettan var þar mun betri en ef skjólið
hefði vantað. Eftir nokkur ár vona ég, að víðirinn verði orð-
inn sex metra hár og hann lialdist síðan við í þeirri hæð uin
mjög langt árabil. Þarf ekki að fjölyrða um það, hversu hinn
erlendi víðir getur myndað þýðingarmikla skjólgarða fyrir við-
kvæmari trjágróður í heimilislundum á bersvæði sveitanna.
Reyniviðurinn er hið viðkvæma og duttlungafulla skrauttré
íslendinga. Þar sem birkið er í þéttri línu milli tveggja raða
af reynikvistum, líður ekki á löngu, áður en birkið sýnir móð-
ureðli sitt. Það fær þroskamikinn stofn og þróttmiklar, blað-
inargar greinar, sem breiðast út til allra hliða og mynda ör-
uggan skjólgarð um hina grönnu og veigalitlu reynikvisti til
beggja hliða. Á þennan hátt fær reyniviðurinn mjög góð vaxl-
arskilyrði. Birkið hlífir honum, en hann nær til fulls í Ijós
og sólaryl yzt í trjáröðunum. Ég hygg, að ef menn vilja mynda
reynigöng meðfram heimreiðum að bæjum, verði öruggast að
hafa tvær i-aðir af birkitrjám í miðju, en reyniviðinn á báð-
um röndum. Síðan mætti taka liirkið burtu, ef þurfa þætti,
en að öllum líkindum mun liilt þó þykja fallegra, að blanda
birki og reyni saman, þar sem á að inynda trjágöng heini að
sveitabæjum. Reyniviðnum er mjög nauðsynlegt að tiafa góðan
jarðveg, heppilegan álnirð og skjól, en við þau skilyrði dafnar
hann vel og er hið mesta augnayndi með fögru blaðskrauti og
rauðum aldinklösum. Kunnáttumenn segja, að birkið þoli ekki
mjög frjóa mold eða áburð. Mín reynsla er á annan veg. Eg
beld, að birkið vaxi bezt í góðu gróðurlandi og dafni einkar vei
við hóflega áburðarnotkun. En skjólið er lifsnauðsyn fyrir
birkið. í sexfaldri röð bygg ég, að þær hríslur, sem bezta hafa
aðstöðu, geti náð fullum þroska. f Svíþjóð lcggja skógræktar-