Andvari - 01.01.1946, Síða 52
48
Runólfur Sveinsson
ANDVARI
U. S. A. var mjjungar í lcynbótum bújjár, vélanotkun i bún-
aði, búnaðarfræðsla, bæði á skólum og meðal bændanna,
og — eftir því sem tími ynnist til — að kynnast bændum og
praktiskum búskap þeirra.
Eftir að hafa ferðazt um Bandaríkin og dvalizt þar tæplega
eitt ár, tel ég, að ég hafi náð tilgangi ferðarinnar betur en ég
hafði þorað að búast við í upphafi
Ég hef leyft mér að taka saman nokkur atriði um það, sem
ég sá og heyrði í þessari ferð, og hugleiðingar mínar um
það, sem ég álít, að gera þurfi nú í landbúnaðannálum hér
á landi.
II. Hvernig ég hagaði ferðum mínum í Bandaríkjunum.
Landbúnaðarráðuneyti Bandarikjanna hafði fyrir milli-
göngu hr. sendiherra Thors Thors heilið mér aðstoð sinni við
ferð mina og dvöl í Bandaríkjunum. Var það aðallega einn
maður, Mr. H. Marston, sérfræðingur i búfjárrækt í ráðu-
neytinu, sem aðstoðaði mig við úlvegun á samböndum við
ýinsa landbúnaðarháskóla, tilraunastöðvar, sérfræðinga í bú-
fjárrækt og búnaðarfræðslu o. fl. í íslenzka sendiráðinu í
Washinglon var mér leiðbeint og hjálpað á ýmsa lund, og kann
ég starfsfólki þess hinar beztu þakkir fyrir.
1. Það varð að ráði, að ég fór fyrst á sveitabæ í Virgina-
fylki. Búgarður þessi er eign bóndans, sem býr þar og rekur
búskap. Jörðin er fremur stór, eða um 270 ha ræktað land.
Þar er vel hýst, fyllsta vélanotkun bæði utan húss og innan
og rekstur búsins allur mjög fullkominn, að mér virtist. Á
bóndabæ þessuin dvaldi ég mánaðartíma, og samtínus
kynntist ég búnaðarráðunaut héraðsins og heimsótti með
honum nokkra tugi bænda í umdæmi lians
2. Næsta tímabil var ég í Cornell University í Ithaca í Ne\v
York-fylki. Dvaldi ég þar einnig um mánaðartima og sótti
námskeið, sem þar var haldið í „tæknifrjóvgun" („sæðingu )
húsdýra og kynbótum.
3. Því næst var ég um þriggja vikna tíma i Michigan-fylki.