Andvari - 01.01.1946, Síða 69
andvari
Ferð til Bnndarikjannn 1944-—45
65
íslenzka sauðl'járins, og ekki síður vegna þess, að markaðs-
hæfni og gæði dilkakjöts er of almennt á iágu stigi, þá tel ég
111 jög aðlcallandi, að hafizt verði strax handa um innflutning
sauðl'jár. Flytja þarf inn fé af þrautræktuðum kynjum, sem
Mefa góðá sláturkroppa, er harðgert og líklegt þykir að hæfi
vel náttúruskilyrðum hér á landi. Koma hér fyrst og fremst
*’í greina Blackface og Cheviotfé frá Bretlandseyjum, e. t. v.
etnnig fleiri kyn, t. d. Columhiafé frá Bandaríkjunum.
Fyrir rúmlega þremur árum siðan benti ég á nauðsyn þess,
að hafizt yrði handa þá strax uin innflutning á sauðfé. Því
niiður hefur ekkert verið gert í því máli enn þá, og tel ég það
illa farið.
Á siðustu þrem lil l'jórum árum heí'ur stórfé verið eytt
yegna sauðfjárveikivarna, í uppeldisstyrki og sauði'járskipti
i sunium héruðum landsins. Ég fullyrði, að verulegum hluta
af því fé het'ði verið betur varið til innflutnings á erlendum
fjárkynjum. „Betra er seint en aldrei“ og ber þvi að hefjast
handa í þessu efni strax.
C. Hrossaræktin. Islendingar hafa löngum átt fleiri hross
hlutfallslega en nokkur önnur þjóð í heimi. Og þrátt fyrir, að
nllt fram á þessa öld voru hestar nær eina flutningatækið
hæði á vöruin og fólki á landi, þá hafa verið iniklu fleiri hross
1 landinu en þau, sem notuð voru.
Hrossuin er hér á landi skipt í Ivo flokka, í vinnuhross og
stóð. Hrossafjöldinn, og þá einkum stóðið, liefur mjög farið
eHir árferðinu á hverjum tíma. Á góðæristímabilum aldanna
hefur þeim fjölgað, stundum ótrúlega ört, en í harðindaárum
hafa þau fallið að meira eða minna leyti.
Islenzku hrossin tilheyra þeim flokki hesta, sem nefndir
eru smáhestar (Ponies). Þeir eru yfirleitt allt of léttir og
önýtir til notkunar við jarðvinnslu. Hins vegar hafa sumir
þeirra mjög verðmæta eiginleika sem reiðhestar, svo sem
•jölhæfni og mýkt í gangi, vilja, þol o. fl.
Siðustu áratugina hefur farið nijög í vöxt notkun véla í
stað hesta, einkanlega lil flutnings, og nú virðist öld vélanna
v*ð nærri öll bústörf vera riðin í garð. Það er því svo, að nú