Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1946, Page 70

Andvari - 01.01.1946, Page 70
66 Runólfur Sveinsson ANDVíVHI er iniklu færri hesta þörf hér á landi en nokkru sinni fyrr. En svo óheppilega vill þó til, að hér eru nú e. t v. fleiri hross en nokkru sinni fyrr í sögu landsins, og áreiðanlega miklu fleiri en nokkur þörf er fyrir. Ég hygg, að nú séu á íslandi um 70 000 hross. Sennilega er aðeins % þeirra taminn, en mörg af þeim lítið notuð. Hitt er stóð, í rauninni villt hross, sem engum eru til gagns, en mörgum til ógagns. Þau eru óþarfapeningur, sem tekur upp feikn af fóðri frá öðru þarfara og verðmætara búfé, bæði sumar og vetur. Þegar harðir vetur koma, setja þau allt í voða. Öll þessi óþarfa hross eru plága á landbúnaðinum. Með einhverjum ráðuin þarf að fækka hrossunum í land- inu um 50 000. Oft hefur bændum, bæði í ræðu og riti, verið bent á þá hættu, sem stafar af þessari miklu hrossaeign. Þeir hafa ekki tekið það til greina og verður því að reyna aðrar og kröftugri ráðstal'anir. Jafnframt þarf að bæta ræktun reiðhesta í landinu, meðal annars með því að flytja inn úr- vals einstaklinga af amerískuin reiðhestum Qunnar Bjarnason ráðunautur hefur bent á, að rétt væri að skattleggja verulega alla óþarfa hrossaeign og nota þá pen- inga, sem þannig fengjust, til kynbótastarfsemi og endurbóta á reiðhestakyni í landinu. D. Alifuglar (hænsn). Nokkur hænsn liafa alltaf verið á íslandi, en virðast illa hirt og af lélegum stofnum. Oft hafa verið flutt inn egg. Við ættum að nota meira af eggjum til inatar en nú er gert. Hænsnarækt er yfirleitt ekki verulega liáð veðráttu eða öðrum náttúruskilyrðum, og sé ég enga ástæðu til annars en að við framleiddum nóg af eggjum hér á landi til eigin þarl'a. Hænsnakynin þarf þó að bæta að mun, t. d. með innflutningi nýrra kynja, og mikil þörf er á að vinna að endurbótum a hirðingu þeirra og ineðferð. E. Loðdýraræld. Fyrir 10—15 árum síðan hófst loðdýra- rækt hér á landi. Þær Ioðdýrategundir, sem ræktaðar hafa verið, eru silfurrefir, blárefir og minkar.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.