Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 78
74
Runólfur Sveinsson
ANDVARI
vallarskilyrðum þess að gera störfin þar léttari og ódýrari
en verið hefur. Leiðin til þess er aukin vélanotkun utanhúss
og innan.
7. Rannsókna- og tilraunastarfsemi.
í flestum landbúnaðarlöndum heims leggur ríkisvaldið
riflegan skerf af almannafé til rannsókna og tilrauna á sviði
landbúnaðar. Grundvöllur allra búvísinda liggur öðrum
þræði í niðurstöðum þessara rannsókna og hinum í reynslu
bænda. Búvísindin hafa tvenns konar gildi, almennt gildi og
staðbundið. Ýmis sannindi gilda jafnt hér norður á íslandi
og suður við Miðjarðarlínu, önnur eru staðbundin og háð
náttúruskilyrðum og aðstæðum á hverjum stað. ísland hefur
nokkta sérstöðu sem landbúnaðarland hvað hnattstöðu og
veðráttu snertir, eins og áður getur. Meðal annars þess vegna
er okkur nauðsynlegt að framkvæma ýmsar rannsóknir og
tilraunir, sem aðeins er hægt að gera hér á landi, svo þær öðlist
gildi íslenzkra staðhátta. Hefur nokkuð verið vikið að því áð-
ur, t. d. viðvíkjandi jarðvegsrannsóknum og kynbótum. Við
þurfum einnig að efla mjög rannsóknarstarfsemi á sviði
vinnslu úr hráefnum landbúnaðarins, fóðrun búpenings-
ræktun nytjajurta o. fl.
Við höfum nú hér á landi tvær tilraunastöðvar í jarðrækt-
Atvinnudeild Háskólans er ætlað að vinna að vísindalegum
rannsóknum landbúnaðarins. Hún hefur ekki enn þá tekið til
starfa af þeim krafti, sem til er ætlazt. Rétt væri einnig a®
auka tilraunastarfsemina á búum bændaskólanna, einkum i
búf járrækt.
8. Vöruvöndun og vörumat.
Afkoma flestra þjóða byggist fyrst og fremst á framleiðslu
af vörum. Vörurnar, sem eru ýmist hráar til neyzlu og iðu-
aðar eða unnar, ganga kaupum og söium manna og landa á
milli.
Það er gömul kenning, að verðlag varanna skapist af iram-
boði þeirra og eftirspurn. Það mun og vera svo að miklu leyt'-
Eftirspurn hverrar vörutegundar getur þó því aðeins skapaz