Andvari - 01.01.1946, Qupperneq 80
76
Runólfur Sveinsson
ANDVARI
lenzkir nautgripir injög fjarri því að gefa kjöt, sem er gott
til átu. 1 öðru Iagi er slátrun á nautgripunum yfirleitt fram-
kvæmd á sveitaheimilunum, oftast við afleit skilyrði. í þriðja
lagi er ekkert mat á nautakjöti.
Það er auðsætt, að bæði framleiðendum, þ. e. bændum,
og neytendum er fyrir beztu, að vöruvönduri hverrar vöru sé
sem mest. Hér þarf því strangara vörumat og miklar um-
bætur á vöruvöndun allri. Það eru auðsæ sannindi, að góðar
vörur skapa góðan markað, gott verð og betri afkomu bænd-
anna.
9. Búnaðarfræðslan.
Hér á landi eru nú tveir bændaskólar. Þeir hafa starfað
um 60 ára bil. Fáir efast nú um, að þeir hafi gert landbúnaði
okkar mikið gagn. Hins vegar vil ég benda á, að þeiin er
áfátt í ýmsu. Einkanlega er útbúnaður þeirra fátæklegur og
ófullkominn að mörgu leyti. Húsakostur er af skornum
skammti, kennsluáliöld líka, og nú alveg sérstaklega í byrjun
nýrrar vélaaldar vantar þar flestar stærri og smærri vélar,
sem nauðsynlegl er að reyna og nota hér á landi. Úr þessu
þarf að bæta hið bráðasta.
Talað er um að reisa nýjan bændaskóla í Skálholti. Mér
skilst, að sá skóli eigi að rúma um 40 nemendur. Ef útbúa á
slíkan skóla að húsum öllum, áhöldum og fullkomnustu vél-
um, mun hann uppsettur kosta nú svo milljónum skiptir-
Ég hygg, að þörf sé á nýjum bændaskóla, þó má deila um það,
en ég tel fásinnu eina að reisa hann, ef við ekld höfum ráð á
að gera þá skóla, sem fyrir eru, og þann nýja, svo úr garðú
að þeir fullnægi þeim Ioöfum um aðbúnað allan, sem til
þeirra verður að gera á hverjum tíma.
Þá hefur verið rætt um framhaldsnám í búfræði hér á landi.
Ég tel mikla nauðsyn vera, að bráður bugur sé undinn að þvi
að koma framhaldsnámi búfræðinga hér á fót. En um leið
þarf að gerbreyta allri ráðunautastarfsemi landsins, sem ég
og tel mikla nauðsyn.
Núverandi ráðunautar Búnaðarfélags íslands eru svo fán',
að þeim er ómögulegt að starla nema að litlu leyti persónu-