Andvari - 01.01.1946, Side 82
78
Runólfur Sveinsson
ANDVARI
3. Flokka og meta jarðveg til ræktunar og fá úr því skorið,
hvaða nytjajurtir eru heppilegastar til ræktunar á ís-
landi.
4. Rækta kartöflur í það stórum stíl, e. t. v. á einum stað,
að ekki þurfi að flytja inn kartöflur.
5. Flytja inn erlend rirvals nautgripakyn.
6. Flytja inn erlend sauðfjárkyn.
7. Skattleggja öll óþarfa hross, þ. e. stóðið, og leggja ineiri
rækt við reiðhestarækt í landinu.
8. Auka og bæta hænsnaræktina.
9. Auka og bæta loðdýraræktina og flytja inn ný afbrigði
loðdýra frá Ameríku.
10. Nota „artificial insemination“ við kynbætur búfjárins
og í sambandi við innflutning kynbótadýra.
11. Koma upp kynbótabúum og starfrækja a. m. k. eitt kyn-
bótabú fyrir hverja búfjártegund.
12. Gera ráðstafanir til, að votheysgerð aukist stórkostlega
í landinu.
13. Auka véltækni og vélanotkun í búskap, bæði utanhúss og'
innan.
14. Koma upp „hreyfanlegum viðgerðarverkstæðum“ fyrir
landbúnaðarvélar.
15. Auka tilrauna- og rannsóknarstarfsemi búnaðarins.
16. Bæta vöruvöndun og vörumat, alveg sérstaklega á mjólk
og kjöti. Gerbreyta þarf mjólkurbúðunum í Reykjavik
og afgreiðslu allri á mjólk.
17. Auka vélakost bændaskólanna, enn fremur hiisakost
þeirra og kennsluáhöld, bæði í bóklegu og verklegu námi-
18. Koma á stofn framhaldsdeild í búfræði.
19. Ráðunautar verði búsettir a. m. k. einn í hverri sýslu
landsins og starfi þeir með bændum árið um í kring-
20. Auknar og efldar séu búnaðarsýningar og há verðlaun
séu veitt úrvals búskap, bæði í jarðrækt og búfjárrækt.