Andvari - 01.01.1946, Qupperneq 89
andvari Um gróðurmenjar í Þórishlíðarfjalli við Selárdal.
8ö
vel skýr. Grunnurinn er hjartálaga, og' virðast separnir ganga
á misvíxl. Rendur þeirra eru fíntenntar. Fimm frekar grannir
aiðastrengir liggja um blöðkuna l'rá grunni hennar, þar sem
stilkurinn er festur við hana. Frá neðsta pari þessara aðal-
strengja liggja fínni strengir um sepana og frá þeim enn l'ínni
strengir út í tennurnar á separöndunum. Frá neðanverðum
strengjum næsta pars liggja að minnsta kosti fjórar greinar
Jivorum megin. Aðalstrengur sá, er til blöðkutoppsins liggur,
l>er fimm stakstæða hliðarstrengi hvorum megin, og kvíslast
þeir neðslu, er út í blöðkuröndina lcemur. Strengir æðanets-
ins, sem eru mjög grannir, en greinilegir á myndinni, standa
liornrétt á aðalstrengi og greinir þær, sein æðanetið er
tengt við.
Blað þetta er í svo fullkomnu samræmi við vínviðarblað
þnð, sem Heer lýsir fyrstur, frá Grænlandi, og hann nefnir
vitis olriki (4), að tæpast getur nokkur vafi á því leikið, að
lrér sé um hlöð sömu tegundar að ræða. í íslenzltu stein-
gervingasöfnunum, sem Heer ákvarðaði, fann hann blaðbrot,
er hann áleit, að væri af vínvið, og hann nefndi vitis islandica.
Siðan hafa verið bornar á það brigður, að þetta væri vín-
viður (5), enda er blaðbrotið, sem Heer myndar, svo lítið, að
vart verður nokkuð sagt um, hverrar tegundar það er. Hinu
111 á aftur halda fram, að sé hinn grænlenzki vinviður, vitis
alriki Heer, rétt álcvarðaður, þá hefur vínviður líka vaxið hér
a landi í þann mund, er steingervingalagið í Þórishlíðarfjalli
varð til, svo er samræmið fullkomið með þessurn blöðum.
Síðan Heer lýsti þessari vínviðartegund frá Atanekerdluk
í Norður-Grænlandi, liafa Ameríkumenn fundið sömu tegund
i tertierum jarðlögum þeirrar heimsálfu, þar á meðal í Al-
aska (3). Annars staðar frá er mér ekki kunnugt um, að
liennar sé getið. Á öllum þeim stöðum, sem hún hefur fundizt
a í Ameríku, er hún frá því mjög snemma á terliera tíma-
hilinu (eocen). Það bendir til þess, að steingervingalögin í
Þórishlíðarfjalli séu einnig eocen að aldri.