Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 4

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 4
Ávarp 50 ára ffullveldi og reisn Háskóla fslands íslenzk þjóð, og þá einkum stúdentar, minnast í dag þeirra hugsjónamanna, sem með harðri baráttu, at fórnarlund og ætt- jarðarást, lögðu hornstein þess fullveldis, sem varð að veruleika með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Framlag þeirra var stórt, en sú staðreynd krafðist enn veglegri framlaga af hálfu niðjanna. Fullveldi er eitt og rétt meðferð valdaaðstöðu annað. Er ástasða til fagnaðar á hálfrar aldar fullveldisafmæli? Staðreyndir tala sínu máli: Stórstígar framfarir á flestu msviðum, nánast stökkbreytingar á íslenzku þjóðfélagi í átt til nútíðarhorfs, vonir, sem einungis bjartsýnustu menn áttu, eru nú veruleikinn einn. Sýnt er því og sannað, að kröfur um fullveldi og síðar stofnun lýðveldis höfðu við rök að styðjast, voru byggðar á framsýni og raunsæju mati aðstæðna. Langvarandi efnahagserfiðleikar og aðrar tímabundnar torfærur breyta engu um dóm sögunnar. Flálfrar aldar reynslutími íslands sem fullvalda ríkis hefur um leið verið reynslutími fyrir eitt liið helzta af óskabörnum þess, háskólann. Hið lofsverða framtak, sem stofnun skólans var tví- mælalaust á sínum tíma, er eflaust ávöxtur þeirra frjálsræðis- og sjálfstæðishugmynda, sem svo mjög voru áberandi á fyrstu árum aldarinnar og leiddu til aðskilnaðar við Dani og lýðveldisstofn- unar. Hátt var stefnt í fyrstu, svo sem efni stóðu til. En reynslu- tíminn er háskólanum mun óhagstæðari en hinu nýfrjálsa, full- valda ríki. Skilningur alls almennings og ráðamanna á hlutverki og þörfum þessarar stofnunar hefur einatt verið næsta takmark- aður: Háskóli er nauðsyn, hann er þjóðþrifastofnun, en nægir honum ekki nafnið eitt? Háskóli íslands hefur aldrei verið vísindastofnun, eins og vonir stóðu til, og nú er svo komið, að hann veldur ekki hlutverki sínu sem kennslustofnun nema að mjög takmörkuðu leyti. Lengur verður ekki beðið eftir frelsun. Þráðurinn að ofan er slitinn. Verkefni stúdenta, kennara og æðstu stjórnar skólans er nú að færa háskólann úr niðurlægingu og vanrækslu til þeirrar reisnar, sem honum sæmir. Verkefnið er þríþætt: I fyrsta lagi að afmarka þjóðfélagslegt hlutverk og skyldur háskólans, í öðru lagi að vinna ötullega að framtíðarskipulagi, bæði á stjórn skólans og stofnun- inni sjálfri, en að því loknu að hefjast handa um þriðja lið verk- efnisins, þann brýnasta og mikilvægasta, sem grundvallast þó á hinum tveimur, hraðfara en þó vandaða allsherjaruppljyggingu háskóla, sem stendur undir nafni. Stúdentar og aðrir velunnarar háskólans! Vekjum þjóðina til vitundar um þjóðhagslegt mikilvægi aSðstu menntastofnunar í landinu. Sofandaháttur yfirvalda og afskiptaleysi þeirra af mál- efnum háskólans er vanræksla og svik við þjóðina í heild. Olafur G. Guðmundsson. FORSETAR LÝÐVELDISINS Sveinn Björnsson Ásgeir Ásgeirsson Kristjón Eldjórn STÚDENTABLAÐ 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.