Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 46

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 46
ísland getur í rauninni ekki lengur staðið að hálfu í og að hálfu utan við heiminn. Islendingar hafa fyrir löngu tekið afstöðu; landið og þjóðin eru runnin inn í hið mikla, lögbundna samhengi. Það er „að- eins“ eftir að taka afleiðingunum af því. Mér virðist bara að þjóðin hafi ekki enn fyllilega tekið afleiðingunum af því. En það kemur! Þegar rætt er um ísland við íslendinga, heyrir maður sífellt: „Við erum svo fáir.“ Þvaður. Ekki svo að skilja, ég hefði síður en svo á móti því að til væru fleiri íslend- ingar í veröldinni. En í reyndinni eru þeir nógu margir. „Það er þess vegna sem við höfum tvö eða þrjú störf hver,“ segja þeir, „vegna þess að við erum svo fáir.“ Ekkert annað en þvaður. íslendingar mundu ná miklu betri árangri ef þeir greiddu sérhæfðum og góðum starfsmönn- um svo vel, að þeir menn, sem búa yfir þessu afli — hinum eiginlega gullforða þjóðarinnar — gætu einbeitt sér að því verkefni einu í þjóðfélaginu, sem þeim hef- ur verið trúað fyrir. Þetta er mín fullkom- lega lotningarlausa staðhæfing. Það er líka lotningarlaus fullyrðing mín, að íslenzka þjóðin sé, hvað sem líður virðu- legum aldri hennar, mjög ung þjóð í mjög ungu þjóðfélagi. Þegar lengra er horft, stendur hún and- spænis mikilli og farsælli framtíð, ef hún fær frelsi til að sækja þá hvata og þau áhrif út í frá, sem bezt fá þjónað þessu þjóðfélagi á hverjum tíma, að viðbættu annars konar og miklu næmara gagnrýnu skyni og fram- lagi að því er varðar ytri og minni háttar þætti nútímamenningar. Því þegar öll kurl koma til grafar, er þjóðin öflug og alls ekki lítil eða fámenn. Menn verða að hætta að afsaka sig með því í hvert skipti sem eitthvað mistekst. Ég held að íslenzka þjóðin búi yfir miklum hæfileikaforða, sem hefur ekki enn verið hagnýttur. Nú má ekki bíða lengur! Það er ævinlega eitthvað, sem mistekst í sundurleitu nútímaþjóðfélagi. Spurningin er þá einungis hvort menn hafa vit og vilja til að „bæta með bót sem dugir“. Ivar Eskeland. Böðvar Guðmundsson: og við héldum að siðferði mannanna hefði tekið framförum við hildar- leikina miklu sem haldnir voru af drottnurum heimsins og einnig við leikina miklu sem haldnir voru við drottnara heimsins öldina sem við héldum að siðferði mannanna hefði tekið framförum við sigur- leikina miklu sem haldnir voru af drottnurum heimsins við drottnara heimsins á öldinni sem siðferði mannanna tók engum framförum ó eftirlótari mönnum og miklu betri hefur sólin verið heldur en guð sem fyrir eintóman misskilning þykir eftirlótari mönnum og miklu betri þó það sé hún sem gefur grasi græn blöð og brúna húð mönnum og konum sem fyrir eintóman misskilning þykir vissara að biðja guð um hvort tveggja þó að hann uppfylli óskir eftir eigin duttlungum þrótt fyrir allar fórnir sem honum eru færðar fyrir eintóman misskilning en hún sé eftirlótari mönnum og miklu kærari æ æ & gissur nokkur þorvaldsson ó flugumýri ló undir rjúkandi rústunum af rjúkandi húsunum löngu óður en heimsvaldasinnar fóru að drepa heimsvaldasinna og komst í sýruker ó flugumýri svo að sýran flæddi yfir gólfið ó rjúkandi rústunum af rjúkandi húsunum og fór að drepa heimsvaldasinna undir rjúkandi rústunum af rjúkandi húsunum löngu óður en heimsvaldasinnar fengu næði til að ótta sig ó að gissur nokkur þorvaldsson ó flugumýri fyndi alltaf sýruker ó flugumýri og kæmist rjúkandi úr rjúkandi rústunum lifandi (Þessi grein er skrifuð sérstaklega og ein- göngu fyrir og samkvæmt tilmælum Stúd- entablaðsins. Eftirprentun, í heilu lagi eða að hluta, án leyfis eða samþykkis höfundar er bönnuð.) STÚDENTABLAÐ 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.