Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 53
Fró Félagi
læknanema
Fclag læknanema er gamall og reyndur
félagsskapur, telur 35 og hálft ár og hef-
ur sem sagt lifað tímana tvenna.
En markmið félagsins hefur ekki
ljreytzt frá því að nokkrir hugsjónamenn
stofnuðu það í miðri sfðustu kreppu,
það cr að sameina læknanema undir eitt
merki og skapa grundvöll til umræðna
um sameiginleg áhugamál, nytsamleg sem
ónytsamleg, skipta okkur af kennslutil-
liögun o. m. fl.
Maldnir eru félagsfundir, þar sem ýmist
eru fengir lærðir menn til erindaflutn-
ing eða læknanemar laka saman efni,
haldin er árshátíð og farnir visindaleið-
angrar, cn þeim er það sameiginlegt, að
þá víkja vísindin skamma hríð fyrir létt-
ara lijali og menn kasta áhyggjum sín-
um hak við sig um stund.
Kynningarfundur er haldinn á hausti
hverju fyrir nýstúdenta og þeim kynnt
námstilhögun og félagsstarfsemi. Síðast-
liðið ár var sú nýjung upp tekin, að ný-
stúdcntum var skipt í 4 manna hópa og
hverjum hóp útnefndur cldri stúdent, er
gæfi, ef óskað væri, upplýsingar og leið-
beiningar um námið. Tilraunin gafst
heldur illa, en ákveðið er, að reyna aftur
í ár, þótti ein tilraun of lítið til að af-
sanna ágæti jjessarar hugmyndar. Útgáfu-
starfsemi F.L. stendur með miklum
hlóma. Félagið gefur út blaðiö Lækna-
nemann, ca. 4 tölublöð á ári.
f fyrra kom í ljós, að mikið vantaði á
að félagið ætti blaðið í heild frá byrjun.
Tók Jjáverandi ritnefnd, með Kristján
Ragnarsson í fararbroddi, sér fyrir hend-
ur það mikla verkefni, að leita uppi jjað,
sem á vantaði og tókst jjað. Hefur félagið
nú fyrir forgöngu þeirra látið Ijósprenta
lilaðið í bókarformi og er jjetta vissulega
mikið f ráðizt fyrir jafnlítið félag.
I>au mál, sem hæst hefur borið í F.L.
undanfarin ár, eru kennslumálin í deild-
inni. Samning nýrrar reglugerðar fyrir
Iæknadeihl hefur staðið yfir, og hefur
læknancmum gefizt kostur á að leggja
þar orð í belg.
Læknanemar vænta sér góðs af fram-
komnum breytingartillögum svo langt
sem Jjær ná, telja þær til bóta frá núver-
andi kennsluháttum. Breytingarnar eru
enn aðeins til á blaði og væntum við þess
fastlcga, að þær verði látnar taka hið
stóra stökk af blaðinu og yfir f raun-
veruleikann og hvorki mölur, ryð né
pólitfkusar fái þeim grandað. I>au hafa
orðið örlög fyrri reglugerðabreytinga,
sem Iæknadeild liefur látið frá sér fara
nýlega.
Læknadeild hefur sprengt utan af sér
[jað húsnæði, er henni er ætlað, og eru
liúsnæðismálin löngu komin í sjálfheldu.
M. a. af Jjessum ástæðum hafa komið
fram sterkar raddir um að takmarka
inngöngu í læknadeild t. d. með því að
láta stúdentsprófseinkunn ráða. F.L. hef-
ur tekið þá afstöðu, að heppilegra sé, að
allir, sem vilja, fái inngöngu og hæfni
manna til námsins sé ákvörðuð eftir að
nám f sjálfri deildinni er liafið.
F.L. tekur Jjátt í aljjjóðasamtökum
læknanema (I.M.F.S.A.). Raunhæf sam-
skipti okkar við samtökin eru einkum
stúdentaskipti, Jj. e. menn fara til mánað-
ar námsdvalar við erlend sjúkrahús og
við fáum aftur erlenda gesti hingað heim.
S.l. sumar tókum við á móti fleiri stúd-
entum erlendis frá en utan fór af okkar
fólki, komu gestir langt að, sumir hverjir,
svo scm frá svo fjarlægu, dularfullu landi
sem Indónesfu.
Fulltrúar frá F.L. hafa sótt árlegt Jiing
samtakanna og bera heim með sér fersk-
an blæ að utan og gera sér betur grein
fyrir [jví cn áður, að við erum hlekkur í
stóru samfélagi mannanna, en ckki ein-
angrað eyland norður f liafi, og finna
bctur en áður, að íslendingar verða að
lcysa Jjann vanda, að vera sjálfstæð Jjjóð
f hug og vcrki á annan liátt en að cin-
angra sig.
I>á er F.L. aðili að samnorrænum
læknanemasamtökum, er starfað liafa á
Jjriðja ár, og gefst okkur þar gott færi á
að fylgjast mcð þvf, sem nýjast er á
hvcrjum tfma í kennslutilhögun og sam-
skiptum kennara og nemenda við háskóla
granna okkar. Einnig hafa samtökin sctt
sér það mark að vinna að samræmingu
náms f læknisfræði á Norðurlöndunum
og Jjannig brúa bilið á sviði læknisfræði,
líkt og verið cr að gera á mörgum öðrum,
svo sem efnahagssviðinu. En þetta mark
samlakanna er enn fjarlægur draumur.
Ég læt svo þessu fréttkorni lokið, en
langar að endingu, fyrir liönd allra fs-
lenzkra læknanema, að biðja Stúdenta-
blaðið fyrir árnaðaróskir til íslenzku
Jjjóðarinnar á 50 ára fullveldisdcgi licnn-
ar og að gæfan fylgi henni á ókomnum
árum.
Reykjavik, 17. nóvcmber 1968.
Edda Björnsdóttir.
Fró ORATOR,
félagi laganema
Allir stúdentar innritaðir f Lagadeild
Háskóla íslaiuls geta orðið félagar í Ora-
tor gegn greiðslu 100 kr. árgjalds, sem
þá jafnframt er greiðsla fyrir blað fé-
lagsins Úlfljót. Á síðasta starfsári voru
félagar Orators 184 að tölu.
Starfsemi félagsins tóð með allmiklum
blóma s.l. ár og verður hér á eftir gerð
örlítil grein fyrir lielztu þáttum hennar.
I.
Almcnnir félagsfundir voru átta. Var
þar m. a. rætt um handritamálið, fjöl-
mæli, dómsvaldið, störf dómara og lög-
manna, geimrétt og dánarhugtakið.
Margir góðir fræðimenn gcrðu samkom-
ur Jjessar skemmtilegar og fróðlegar með
erindum sfnum, svo sem Gunnar Thor-
oddsen ainbassador, Emil Ágústsson borg-
ardóiiiari, Sveinn Snorrason hrl., Sigurður
Ólason hrl„ Björn Guðmundsson flr.,
Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómari,
próf. Ólafur Bjarnason og próf. Jóhann
Hanncsson auk kennara deildarinnar.
Rétt cr að geta [jess, að á einum fund-
inum fengu Orotorar ágæta heimsókn
lækna- og guðfræðinema.
II.
Fjórar málflutningsæfingar voru haldn-
ar, og var reynt að vanda sem mest til
[jeirra, svo sem með því að stefna aðilum,
dreifa til laganema öllum málsskjölum
og liafa aðila- og vitnayfirheyrslur.
III.
Orator hélt tvö seminör á starfsárinu,
annað með einum kennara deildarinnar.
Helgarseminar var haldið um stjórnar-
skrána, Jjar sem ráðuneytisstjórarnir
Baldur Möller og Jón Sigurðsson og próf.
Þór Vilhjálmsson og Gaukur Jörundsson
lcktor fluttu inngangserindi. Var Jjátttak-
endtim síðan skipt í hópa og efnið rætt,
en sfðan voru sameiginlegar umræður
hópanna.
í hádegisverðarboði, sem var efnt til í
sambandi við seminarið, var 60 ára inn-
lendrar lagakennslu minnzt af rektor
próf. Ármanni Snævarr og tveim laga-
nemum. Þótti [jctta fyrsta seminar Ora-
tors takast vel.
Hin scminaræfingin var um opinbert
réttarfar og fréttaflutning. Héldu þar
tveir laganemar framsöguerindi, cn f um-
ræðum tóku cinnig þátt Halldór Þor-
björnsson sakadómari og Indriði G. Þor-
steinsson ritstjóri. Seminar Jjetta var
lialdið með og undir stjórn Jónatans Þór-
mundssonar lcktors.
IV.
Efnt var til fimm kynnisferða á árinu.
Farið var með fyrsta árs laganema f Borg-
ardóm og Hæstarétt. Lagancmar á fyrri
hluta fóru til Keflavíkur þar sem varn-
arliðið og bæjarfógetaembættið var heim-
sótt, en Jjar tók bæjarfógeti Alfreð Gísla-
son á móti lagancmum. Laganemar á síð-
ari hluti fóru til Vestmannaeyja, [jar sem
bæjarfógeti Freymóður Þorsteinsson og
bæjarstjórn og bæjarstjóri, Magnús
Magnússon tóku á móti laganemum.
Efnt var til alnicnnrar kynnisferðar f
Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, þar
scm laganemar sáu kvikmynd um banda-
rískt réttarfar og skoðuðu bandarfskar
lagabókmenntir.
Einnig var farin kynnisferð út í Viðey
í haust er leið.
V.
Samskipti við erlenda kollega voru
mjög mikil á árinu. Orator átti fulltrúa
á Staldting, sem norskir lagancmar héldu
á s.l. ári. 12 laganemar fóru liéðan í júní
til Danmerkur á 10 daga norrænt laga-
nemamót. í sambandi við hátíðisdag
Orators Jjann 16. febrúar komu hingað
tveir norrænir laganemar scm gestir Ora-
tors. Um sama leyti dvöldust hér tveir
skiptinemar frá lagadeild Glasgow há-
skóla í liálfan mánuð. Tveir Oratorar
héldu síðan til Skotlands til að endur-
gjalda þessa heimsókn.
í apríl sá Orator um 7. formannaráð-
stefnu Norræna laganemaráðsins. Dvöld-
ust hér í góðu yfirlæti 9 erlendir laga-
nemar f 5 daga. Naut Orator fulltingis
margra aðila til að gera Jjeim dvölina
sem eftirminnilegasta. 8. formannaráð-
stefna samtakanna var sfðan lialdin í
Lundi í okt. s.l. og átti Orator fulltrúa
þar. Á þessum fundum hefur aðallega
verið rætt um samræmingu á norrænu
laganámi og prófum; námstækni og
námsleiðbeiningar; norræna styrki til
framhaldsnáms f lögfræði; hópferðir,
laganemamót og fl„ sem varðar norrænt
samstarf. Hafa samtökin gcfið út á árinu
bækling um laganámið á Norðurlöndum.
VI.
Kennslumál voru mjög á dagskrá s.l.
ár, m. a. vegna fyrirhugaðra breytinga á
53
STÚDENTABLAÐ